Útlán
Safnið er opið starfsfólki og nemendum Háskólans á Bifröst sem og öðrum íbúum háskólaþorpsins. Lánstími gagna er mánuður en lánþegar geta endurnýjað lánið ef efnið hefur ekki verið pantað af öðrum. Safnið áskilur sér rétt til að senda notendum reikning vegna glataðra safngagna.
Handbækur (orðabækur, alfræðiorðabækur og uppflettirit af ýmsu tagi) eru eingöngu ætluð til notkunar á bókasafninu og sama máli gegnir um bækur á námsbókasafni.
Fjarnemar
Leitast er við að veita fjarnemum við háskólann eins hraða og góða þjónustu og hægt er. Best er að þeir sendi fyrirspurnir til bókasafnsins á netfangið bokasafn@bifrost.is. Þjónusta við þá felst meðal annars í að senda þeim bækur í pósti eða útvega í millisafnalánum efni sem safnið á Bifröst á ekki.
Millisafnalán
Bókasafnið útvegar notendum bækur sem bókasafnið á ekki, eða tímaritsgreinar frá öðrum söfnum, innlendum eða erlendum. Mikil áhersla er lögð á hraða millisafnalánaþjónustu á Bókasafni Háskólans á Bifröst, og reynt að sinna öllum beiðnum innan sólarhrings frá því þær berast.
Þessi þjónusta er veitt án endurgjalds. Til þess að þjónustan sé skilvirk er notendum ráðlagt að athuga sjálfir hvort viðkomandi rit finnist í í Leitir.is og panta millisafnalánið þar. Í leitir.is er einnig að finna eyðublað fyrir pantanir í millisafnaláni sem ekki eru til á innlendum bókasöfnum. Ítarlegar upplýsingar um efnið sem pantað er tryggir skjótari afgreiðslu. Til dæmis:
Greinar og bækur sem fengnar eru innanlands frá berast yfirleitt innan viku, en greinar og rit erlendis frá tekur oft margar vikur að útvega. Að meðaltali má segja að það taki u.þ.b. hálfan mánuð að útvega efni frá útlöndum.
Lánstími millisafnalána
Algengur lánstími frá innlendum og erlendum söfnum er þrjár til fjórar vikur. Stundum er mögulegt að fá lánstíma framlengdan en beiðni um slíkt þarf að hafa borist starfsfólki bókasafns áður en lánsfresturinn rennur út. Það er ákaflega mikilvægt að skilafrestur bóka sem fengnar eru í millisafnaláni sé virtur og nokkuð háar fjársektir liggja við glatist bók sem fengin er með þessum hætti.
Uppfært í mars 2017