Viðskiptalögfræði með vinnu

Viðskiptalögfræði með vinnu við Háskólann á Bifröst er ný námsleið til BS gráðu í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst.

Viðskiptalögfræði með vinnu við Háskólann á Bifröst er námsbraut sem er skipulögð með það að markmiði að nemendur geti stundað nám samhliða vinnu, hvaðan sem er. Markmið námsins er að búa nemendur undir ábyrgðar-, forystu- og stjórnunarstörf í atvinnulífi og samfélagi og auka hæfni í starfi. Námsleiðin er 190 ECTS einingar og er sett saman úr greinum á sviði lögfræði og viðskiptafræði. 

Námsefni og kröfur eru þær sömu og í staðbundnu námi í viðskiptalögfræði. Nemendur þurfa þannig að skila sömu verkefnum og standast sömu próf og nemendur í staðnámi.

Viðskiptalögfræði með vinnu

Að loknu námi 

Nám í viðskiptalögfræði opnar dyr að fjölbreyttum starfsmöguleikum. Útskrifaðir nemendur frá Bifröst reka m.a. eigin lögmannstofur, starfa á alþjóðavettvangi, t.d. hjá EFTA, í bönkum eða hjá hinum ýmsu ráðuneytum. Lögð er rík áhersla á hagnýta tengingu námsins, á starfsþjálfun nemenda og kjósa margir nemendur að fara í starfsnám sem tengist áhugasviði þeirra í námi.

Nám á Bifröst

Í Háskólanum á Bifröst er leitast við að þróa námsbrautir í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í atvinnulífi og samfélagi. Kennarar eru starfandi sérfræðingar á hverju sviði fyrir sig enda státar Háskólinn á Bifröst af afar sterkum tengslum við atvinnulífið. Við Háskólann á Bifröst er lögð mikil áhersla á persónulega þjónustu til nemenda, bæði af hálfu kennara og annars starfsfólks skólans.

Rík áhersla er lögð á að nemendur geti annars vegar unnið sjálfstætt og hins vegar í hópi. Jafnframt er  áhersla lögð á gagnrýna hugsun og hagnýta tengingu við úrlausn raunhæfra verkefna. Verkefnavinna er stór þáttur námsmats og vinna nemendur að verkefnum jafnt og þétt yfir hverja lotu og þannig geta nemendur tileinkað sér skilning á námsefninu jafnt og þétt. Kennarar leggja inn hljóðfyrirlestra á kennslukerfi skólans reglulega til að miðla kennsluefni til nemenda. Nemendur geta síðan nálgast fyrirlestrana og farið yfir á þeim tíma sem hentar hverjum og einum. Námið í Háskólanum á Bifröst fer fram í lotubundinni kennslu. Önninni er þannig skipt upp í tvær lotur, 7 vikur hver. Á vinnuhelgum á Bifröst fá nemendur tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum viðfangsefnum. Vinnuhelgar fara fram tvisvar sinnum á önn, þ.e. ein helgi á hvorri lotu. Þá gefst nemendum tækifæri til þess að hitta kennara, samnemendur, taka þátt í umræðum og hópverkefnum, sem og hlýða á gestafyrirlesara úr atvinnulífinu í námskeiðum sem það á við.

Sérstaða í kennsluháttum Háskólans á Bifröst felst meðal annars í svökölluðum misserisverkefnum. Auk þeirra verkefna sem unnin eru innan einstakra námskeiða gefst nemendum því kostur á að vinna sjálfstæð hópverkefni á þeirra kjörsviði á meðan náminu stendur. Misserisverkefnin eru kennd yfir sumarannir og eru þau viðamikil verkefni sem nemendur vinna saman sem teymi af 4-6 einstaklingum að rannsóknum og úrlausn sjálfstæðra hópverkefna sem eru síðan kynnt og lögð í dóm kennara og samnemenda. Samhliða misserisverkefnum fá nemendur markvissa þjálfun í verkefnastjórnun. Nemendur eiga að vinna tvö slík verkefni í náminu. Í misserisverkefnum er byggt á kennsluaðferð sem kallast lærdómsþróun (e. learning by developing). Þetta er kennsluaðferð sem byggir á náinni samvinnu nemenda og leiðbeinenda sem og annarra fagaðila á vinnumarkaði. Verkefnavinnan gerir miklar kröfur til nemenda en í verkefnunum er haft að leiðarljósi að þróa nýjar leiðir til að auka verðmætasköpun, samkeppnishæfi, sjálfbærni og nýsköpun. Með aðferðum lærdómsþróunar hafa nemendur stórt hlutverk sem styrkir þá og eykur hæfni þeirra til að takast á við raunverkefni þegar út á vinnumarkaðinn er komið að loknu námi. Einnig hjálpa þessi verkefni nemendum að undirbúa sig við þá vinnu sem felst í því að skrifa lokaritgerð.

Framvinda og námslok

Grunnnám er 190 ECTS og á Bifröst gefst nemendum kostur á að ljúka námi á tveimur og hálfu ári þar sem boðið er upp á nám á sumarönn. Nemendur geta því lokið 80 ECTS einingum á ári í stað 60. Með þessu móti er hægt að ljúka námskeiðum að mestu leyti á fyrstu tveimur námsárum, en á þriðja ári gera nemendur lokaverkefni auk þess að ljúka einingum sem eftir eru með starfsþjálfun eða valnámskeiðum. Á fyrsta námsári taka nemendur fjögur námskeið (samtals 18 ECTS einingar) um aðferðafræði og vinnubrögð. Náminu lýkur með 14 eininga BA ritgerð.

Inntökuskilyrði og umsóknir

Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

Námsskrá

Hér má finna skipulag námsins í kennsluskrá skólans.

Umsóknarfrestur er til 10.  desember nk.

SÆKJA UM