Nám í menningarstjórnun býr nemendur undir viðamikil og oft vandasöm störf á menningar- og menntasviðinu. Námið hefur verið í boði frá árinu 2004 og er mótað með hliðsjón af íslensku og alþjóðlegu menningarumhverfi og þeim áskorunum sem bíða nemenda eftir að námi lýkur.
Markmið námsins er að veita nemendum þann grunn og þjálfun í stefnumótun, stjórnun og rekstri sem nauðsynlegur er í menningarumhverfi samtímans. Háskólinn á Bifröst er eini háskólinn hér á landi sem býður upp á þessa samsetningu náms og reynslan hefur sýnt að nemendur sem útskrifast með meistaragráðu í menningarstjórnun frá Bifröst eru eftirsóttir í störf og samstarf á sviði menningar- og menntastjórnunar.
Háskólinn á Bifröst hefur boðið upp á nám í menningarstjórnun síðan árið 2004 og er eini íslenski háskólinn sem býður upp á slíkt nám. Námið hefur slípast með árunum og mótast í samræmi við íslenskt menningarumhverfi og þær áskoranir sem bíða nemenda eftir að námi lýkur. Þar sem námið byggir bæði á fræðilegri og hagnýtri nálgun gefur það nemendum kost á að vinna með og þróa gagnrýna sýn á menningu og menningarpólitík, um leið og þeir öðlast hagnýta þjálfun sem lýtur að rekstri, stjórnun og skipulagningu.
Námið er 90 einingar á meistarastigi í fjarnámi og er unnt að ljúka náminu á þremur önnum.
Allir nemendur ljúka fimm kjarnanámskeiðum auk þriggja skyldunamskeiða sem bundin eru við hvora áherslulínu um sig og tveggja valfaga sem í boði eru hverju sinni. Nemandi í fullu námi hefur jafnan vinnu við MA-verkefni á annarri önn og lýkur henni á þeirri þriðju ásamt með einu eða tveimur námskeiðum. Meistaraverkefni eru varin formlega frammi fyrir prófdómurum.
Ég er óendanlega þakklát fyrir allt það sem námið á Bifröst hefur gefið mér. Fyrir utan andlegu næringuna sem fylgdi því að fá að dvelja í þessu ótrúlega fallega umhverfi þá var námið sjálft ævintýri frá upphafi til enda. Besta ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu.
– Edda Björgvinsdóttir,
leikkona, menningarstjórnun 2013
Frá og með haustönn 2016 geta nemendur útskrifast með MCM í menningarstjórnun með áherslu á nýsköpun og frumkvöðlastarf (viðbótargráða á meistarastigi) en í þeirri áherslulínu ljúka nemendur 78 ECTS einingum í námskeiðum auk þess að vinna 12 ECTS eininga hagnýtt verkefni í menningarstjórnun. Sá möguleiki er einnig fyrir hendi að sleppa 30 ECTS rannsóknarverkefni og ljúka í staðinn diplómaprófi á meistarastigi í menningarstjórnun. Slík gráða flokkast sem viðbótarnám á meistarastigi (stig 2.1) samkvæmt viðmiðum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins um æðri menntun og prófgráður 2011.
Inntökuskilyrði í námið er grunngráða háskólanáms (t.d. BS, BA, B.Ed eða BFA) eða menntun og reynsla sem telja má sambærilega við grunngráðu í háskóla. Þeir sem ljúka námi fá MA gráðu í menningarstjórnun sem jafngildir meistaraprófi (stig 2.2) samkvæmt viðmiðum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins um æðri menntun og prófgráður 2011.
Umsóknarfrestur er 20. maí fyrir haustönn og 10. desember fyrir vorönn.
Námskrá inniheldur upplýsingar um skipulag náms, kennsluaðferðir og námskeiðslýsingar ásamt lýsingu á þeirri þekkingu, leikni og hæfni sem nemendur eiga að búa yfir að námi loknu.
Umsjón með námslínu: Njörður Sigurjónsson er forseti félagsvísinda- og lagadeildar, staðgengill hans er Helga Kristín Auðunsdóttir.