Velferð og vellíðan í vinnu
Nemendur öðlast fræðilega og hagnýta þekkingu á ýmsum þáttum sem hafa áhrif á vellíðan starfsfólks á vinnustöðum samtímans. Skoðaðar eru nýjar rannsóknir og hugmyndir á sviði vinnusálfræði og mannauðsfræða á því hvað stuðlar að vellíðan í starfi. Fjallað er m.a. um sveigjanleika í starfi, fjarvinnu, samþættingu vinnu og einkalífs, frumkvæði í starfi (m.a. job crafting og proactive behaviors), samvinnu, hópa og teymisvinnu, samsetningu vinnustaða og hönnun þeirra (t.d. opin rými og free seating), starfsframa, ágreining, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Áhersla er á hagnýta tengingu milli nýjustu rannsókna og raunveruleika á vinnustöðum. Fengnir eru gestafyrirlesarar úr atvinnulífinu og byggir námskeiðið alfarið á verkefnavinnu. Stuðst er við námsbók og fræðilegar greinar og rannsóknir og krefst námið agaðra og sjálfstæðra vinnubragða.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja öðlast skilning á þeim þáttum sem hafa áhrif á vellíðan starfsfólks á vinnustöðum
Þátttökugjald er 219.000 kr.
Gerð er krafa um að hafa lokið háskólanámi á grunnnámsstigi
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina lengri rafræna vinnustofu. Kennsla hefst 8. janúar 2024 og stendur til 16. febrúar. Rafræn vinnustofa verður haldin á tímabilinu 25.-28. janúar en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 19.-23. febrúar 2024.
Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í meistaranámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Þóra Þorgeirsdóttir
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 20. desember 2023.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.