Straumlínustjórnun og skipulag

Straumlínustjórnun og skipulag

Markmið námskeiðsins er tvíþætt. Í fyrsta lagi að kynna fyrir þátttakendum helstu kenningar og aðferðir sem þróaðar hafa verið á sviði straumlínustjórnunar. Hins vegar að nemendur öðlist góðan skilning á verkfærakistu straumlínustjórnunar eins og, 5S, VSM, PDSA og A3 sem og hvað þurfi að vera til staðar til að innleiðingu straumlínustjórnunar (LEAN) verði árangursrík og nái fótfestu.
Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna, þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, virkni og þátttöku nemenda.

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja læra aðferðir straumlínustjórnunar

Þátttökugjald er 219.000 kr. 

Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á framhaldsstigi

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur auk einnar námsmatsviku. Kennsla hefst 16. október 2023 og stendur til 24. nóvember 2023. Námsmat fer fram dagana 27.-30. nóvember.  

Kennari

Kennari námskeiðsins er Pétur Jóhannes Óskarsson. 

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 2. október. 

Upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.