Stjórnun samskipta við viðskiptavini (CRM)

Stjórnun samskipta við viðskiptavini

Fjallað er um hvernig stjórnun viðskiptatengsla (CRM) nýtist í markaðsstarfi og hvað þurfi til að innleiða CRM á árangursríkan máta á grundvelli CRM hugmyndafræði. Skoðað hvernig og hvaða áhrif hegðun neytenda hefur á stjórnun markaðsstarfs, hvernig hegðun hefur áhrif á kaupákvörðun, farið yfir ólíkar aðferðir, rannsóknir og markaðsáskoranir. Áhersla á þekkingu og þarfir út frá neytendahegðun í með skírskotun og vísun í tilviksdæmi, dæmisögur og sérvalið lesefni. Öflun nýrra viðskiptavina, þjónusta viðskiptavini. Helstu lykilatriði CRM, þ.á.m., innleiðing, skipulagning, notkun samfélagsmiðla, upplýsingatækni og skoðað hvernig CRM hugmyndafræði og tæknilegir þættir vinna saman með tilviksdæmum og æfingum.

Sjá nánar kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja læra um hvernig þeir geta stýrt viðkiptatengslum á markvissari hátt.  

Þátttökugjald er kr. 75.000. 

Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu. Kennsla hefst 19. ágúst 2024 og stendur til 27.september 2024. Um fjögurra stunda vinnustofa verður á tímabilinu 13. - 15. september, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. 

Kennari

Kennari námskeiðsins eru Haraldur Daði Ragnarsson.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 5. ágúst 2024.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.