Stefnumótun og framtíðarsýn
Námskeiðið er meistaranámskeið í stefnumótun og er ætlað að kynna helstu hugtök og aðferðir stefnumiðaðrar stjórnunar sem er nauðsynlegt að þekkja til að greina og móta stefnu og geta beitt til að ná árangri við innleiðingu hjá félögum, einkafyrirtækjum og opinberum stofnunum. Stefnumótun er skoðuð við ýmsar aðstæður innanlands og á alþjóðavettvangi. Nýstárlegar aðferðir við greiningu verða kynntar, sviðsmyndagreining og hagsmunaaðilagreining.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja kynna sér aðferðir stefnumiðaðrar stjórnunar.
Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi.
Þátttökugjald er 219.000 kr.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á framhaldsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í fimmtán vikur og nemendur mæta í eina vinnustofur á Bifröst og eina vinnustofu á Teams. Kennsla hefst 21. ágúst 2023 og stendur til 24. nóvember 2023. Um fjögurra stunda vinnustofa á Bifröst verður á tímabilinu 14.-17. September og 9.-12. nóvember, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 27. nóvember – 1. desember.
Kennarar
Kennarar námskeiðsins eru Anna Marín Þórarinsdóttir og Haraldur Daði Ragnarsson.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst 2022.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.