Sjálfbærni og menningarstjórnun

Sjálfbærni og menningarstjórnun

Hvert er hlutverk menningarfyrirtækja og stofnanna þegar kemur að sjálfbærri þróun? Í þessu námskeiði verður hugað að umfangi og áhrifum sjálfbærni í menningarstjórnun. Leitast verður eftir svörum við því hvort menningarsviðið geti lagt sitt af mörkum til eflingar sjálfbærar þróunar og hvort menning skipti sköpum fyrir sjálfbæra framtíð. Rýnt verður í Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, sögu og þróun hugtaksins sjálfbærni með sérstakri áherslu á skörun sjálfbærar þróunar og menningarstarfsemi.

Horft verður bæði til þess hvernig innleiðing heimsmarkmiðanna hefur áhrif á menningarstarf og hvernig menningarsviðið getur verið hreyfiafl vitundarvakningar, aukins skilnings og aðgerða. Hverjir eru styrkleikar og veikleikar menningarstofnanna, fyrirtækja og einstaklinga sem starfa á menningarsviðinu þegar kemur að sjálfbærri þróun? Þátttakendur fá innsýn í stefnumörkun og innleiðingu Heimsmarkmiðanna á Íslandi og öðlast hæfni í að flétta saman markmið sjálfbærar þróunar og menningarstarfs.

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, aðgangsviðmið og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja aukinn skilning á því hvernig menningarfyrirtæki og stofnanir geta stuðlað að sjálfbærni í starfsháttum sínum

Þátttökugjald er 219.000 kr 

Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu í Borgarnesi. Kennsla hefst 1. mars 2024 og stendur til 19. apríl 2024. Um fjögurra stunda vinnustofa verður á tímabilinu 4.-7. apríl í Borgarnesi, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 15.-19. apríl.

Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.     

Kennari

Kennari námskeiðsins er Bergsveinn Þórsson

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 18. febrúar 2024.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.