Popúlismi og upplýsingaóreiða

Popúlismi og upplýsingaóreiða

Í þessu námskeiði er fjallað um þjóðernisshyggju, popúlíska pólitík, upplýsingaóreiðu og samsæriskenningar. Fjallað er um hvernig þjóðernispopúlismi hefur vaxið í bylgjum á eftirstríðsárunum og færst af miðju og inn í meginstrauminn. Námskeiðið er bæði á íslensku og á ensku. Hægt er að velja á milli námsbóka á hvoru tungumáli. Fyrirlestar eru á ensku. En staðlota og veffundir fara fram á íslensku. Þátttakendur geta unnið ritgerðarverkefni námskeiðsins á hvoru tungmáli sem er.

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja auka þekkingu sína um samsæriskenningum, upplýsingaóreiðu, popúlisma og þjóðernishyggju.

Þátttökugjald er 164.000 kr 

Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í fjórtán vikur og nemendur mæta í eina fjögurra stunda vinnustofu í Borgarnesi auk rafrænnar vinnustofu. Kennsla hefst 8. janúar 2024 og stendur til 12. apríl 2024. Rafræn vinnustofa verður á tímabilinu 18.-21. janúar. Vinnustofa í Borgarnesi verður á tímabilinu 14.-17. mars. Nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 15.-19. apríl 2024.

Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. 

Kennari

Kennari námskeiðsins er Dr. Eiríkur Bergmann Einarsson

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 20. desember 2023.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.