Opinber stjórnsýsla - skjalastjórnun og rafræn stjórnsýsla

Opinber stjórnsýsla - skjalastjórnun og rafræn stjórnsýsla

Þessu námskeiði er ætlað að auka færni þátttakenda í upplýsinga- og skjalastjórn, öðru nafni upplýsingastjórnun (e. information management), sem og rafrænni og stafrænni stjórnsýslu innan opinberrar stjórnsýslu. Helstu hugtök og aðferðir við upplýsingastjórn verða kynntar til sögunnar. Þátttakendur fá þjálfun í grundvallaratriðum í upplýsinga- og skjalastjórn, einkum hvað snýr að kerfisbundinni skráningu gagna óháð formi. Þá verður fjallað um hlutverk Þjóðskjalasafns, stefnu stjórnvalda um stafræna stjórnsýslu og helstu lög og reglur er varða upplýsinga- og skjalastjórn sem og varanlega varðveislu opinberra gagna. Einnig verður lögð áhersla á skipulag og framsetningu skjala og skráa í gæðakerfum, samspil upplýsinga- og skjalastjórnar og gæðastjórnunar, áhrif helstu staðla á meðferð gagna á vinnustað, gerð verklagsreglna og uppsetningu ýmissa skjala, s.s. vinnulýsinga, eyðublaða og gátlista. Fjallað verður um þróun upplýsingastjórnunar í daglegu starfi, s.s. áhrif fjarvinnu og samfélags- og samskiptamiðla á öryggi gagna.

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja auka færni sína í skjalastjórnun og rafrænni stjórnsýslu innan opinberrar stjórnsýslu.

Þátttökugjald er 164.000 kr 

Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í fjórtán vikur og nemendur mæta í eina fjögurra stunda vinnustofu í Borgarnesi auk rafrænnar vinnustofu. Kennsla hefst 8. janúar 2024 og stendur til 12. apríl 2024. Rafræn vinnustofa verður á tímabilinu 18.-21. janúar. Vinnustofa í Borgarnesi verður á tímabilinu 14.-17. mars. Nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 15.-19. apríl 2024.

Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. 

Kennari

Kennari námskeiðsins er Ragna Kemp Haraldsdóttir

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 20. desember 2023.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.