Markaðsrannsóknir
Þekking á markaðsumhverfinu er nauðsynleg í stjórnunarlegum ákvörðunum, stefnumótun og við gerð markaðs- og aðgerðaáætlana. Fjallað um mikilvægi markaðsrannsókna innan markaðsgeirans, mismunandi tegundir rannsókna, ferli markaðsrannsókna og greiningu niðurstaðna. Unnin er markaðsrannsókn sem hluti af námskeiðinu.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja læra aðferðir markaðsrannsókna.
Þátttökugjald er kr. 219.000 kr.
Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á framhaldsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í fimmtán vikur og nemendur mæta í eina vinnustofur á Bifröst og eina vinnustofu á Teams. Kennsla hefst 21. ágúst 2023 og stendur til 24. nóvember 2023. Um fjögurra stunda vinnustofa á Bifröst verður á tímabilinu 14.-17. September og 9.-12. nóvember, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 27. nóvember – 1. desember.
Kennarar
Kennarar námskeiðsins eru Kári Joensen, lektor og Ragnar Már Vilhjálmsson, aðjunkt við Háskólanna á Bifröst.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst 2022.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.