Íslenska sem annað mál A.2.1 fyrri hluti
Námskeiðið er hluti af námsleið í íslensku sem annað mál, og hægt er að taka það stakt eða halda áfram á námsleiðinni.
Námskeiðið er á stigi A.2.1. á evrópska tungumálarammanum og er fyrra námskeið af tveimur á því stigi
Hér má sjá nánari upplýsingar um námsleið í íslensku sem annað mál
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Notast er við vendikennslu sem felur í sér að nemendur fá fyrirlestra, verkefni og æfingar á rafrænu formi og sækja síðan vikulega umræðu- og verkefnatíma með kennurum þar sem þeir fá þjálfun í tali og hlustun á íslensku. Gert er ráð fyrir að nemendur taki virkan þátt í samræðum í verkefna- og umræðutímum. Vikulegir tímar verða á miðvikudögum kl. 17:40. Nemendur geta búist við að verja 15-20 klst á viku í vinnu við námið.
Vikulegar kennslustundir á Teams verða á miðvikudögum kl. 17:40-18:40
Aðgangsviðmið
Gert er ráð fyrir að þeir sem hefji námskeiðið hafi grunn í íslensku sem samsvarar stigi A.1.2.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Sigríður Kristinsdóttir
Verð
Verð fyrir námskeiðið er 18.750 kr.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 20. desember 2023.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.