Hagnýtur höfundarréttur í skapandi greinum
Farið er yfir mikilvægi höfundaréttar í skapandi greinum og hvernig hann tengist öðrum sviðum hugverkaréttinda. Lagarammi höfundaréttar er skoðaður: hvað felst í höfundarétti, hvaða takmarkanir eru á höfundarétti, hvað felst í flutningsréttindum tónlistarfólks og annarra listflytjenda, hvað felst í framleiðendarétti, og hvernig er hægt að framselja höfundarétt og fylgja eftir höfundarétti ef brotið er á honum. Farið er yfir hvaða sérreglur gilda í höfundarétti varðandi mismunandi listsvið, þ.e. sjónlist, tónlist, ritlist og kvikmyndagerð og hvernig staðið er að samningum á þessum sviðum. Þá eru rétthafasamtök/umsýslustofnanir höfundaréttar þessara mismundandi listgreina kynnt og hvaða hlutverki þau hafa að gegna.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja öðlast skilning á lagaramma höfundarréttar
Þátttökugjald er 164.000 kr.
Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu í Borgarnesi. Kennsla hefst 1. mars 2024 og stendur til 19. apríl 2024. Um fjögurra stunda vinnustofa verður á tímabilinu 14.-17. mars í Borgarnesi, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 15.-19. apríl.
Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.
Kennarar
Kennarar námskeiðsins eru Anna Hildur Hildibransdóttir og Rán Tryggvadóttir
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 18. febrúar 2024.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.