Grunnur í verkefnastjórnun

Grunnur að verkefnastjórnun

Í námskeiðinu er viðfangsefnið lífshlaup og einkenni verkefna, markmið, verkgreining, sundurliðun verkþátta og flæðirit, áætlanagerð, aðfangastýring, lágmörkun verkefnatímans, áhættustýring, verkkaupin, verkefnastjórinn, verkefnateymið, hagaðila og samspil allra þessara þátta. Hvernig velja á milli verkefna?
Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna, þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, virkni og þátttöku nemenda.

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja þekkja helstu kenningar, hugtök og aðferðir í verkefnastjórnun.

Þátttökugjald er 164.000 kr 

Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina lengri rafræna vinnustofu. Kennsla hefst 8. janúar 2024 og stendur til 16. febrúar. Rafræn vinnustofa verður haldin á tímabilinu 18.-22. janúar en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 19.-23. febrúar 2024.

Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst.   

Kennari

Kennari námskeiðsins er Sigurður Blöndal

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 20. desember 2023.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.