Framleiðsla menningarefnis

Framleiðsla menningarefnis

Framleiðsluferli menningarefnis og viðskiptamódel skoðuð. Fjallað er um hvernig verkefni eru skipulögð og fjármögnuð. Farið er yfir teymissamsetningu, mikilvægi samninga, réttindamál, ólík hlutverk í framleiðsluferlinu, teymisssamsetningu, markaðssetningar-, dreifingar- og sölumál. Heimsmarkmiðin skoðuðu í tengslum við breytta framleiðsluferla og neyslumynstur í stafrænum heimi. Framleiðendur og stjórnendur úr mismunandi greinum koma með dæmisögur um framleiðslu á menningarefni.  

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja læra um hvernig framleiðsla menningarefnis er skipulögð og fjámögnuð. 

Þátttökugjald er 164.000 kr 

Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina lengri rafræna vinnustofu. Kennsla hefst 8. janúar 2024 og stendur til 16. febrúar. Rafræn vinnustofa verður haldin á tímabilinu 18.-22. janúar en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 19.-23. febrúar 2024.

Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.   

Kennarar

Kennarar námskeiðsins eru Anna Hildur Hildibrandsdóttir og Björn Ingadóttir

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 20. desember 2023.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.