Evrópuréttur
Í þessu námskeiði verður fjallað ítarlega um tilurð stofnun og þróun Evrópubandalagsins og Evrópusambandsins (EB og ESB). Einnig verður fjallað um skipulag og stofnanir sambandsins lagasetningarvald þess og réttarheimildir. Ítarlega verður fjallað um fjórfrelsið svokallaða og samskipti stofnana sambandsins. Einnig verður fjallað um tilurð stofnun og þróun EES samningsins og stöðu Íslands innan sambandsins og þeirra meginreglna sem gilda við gildistöku gerða ESB hér á landi. Farið verður yfir hlutverk Eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA dómstólsins.
Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar
Námskeiðið hentar þeim semhafa áhuga á málefnum Evrópu.
Þátttökugjald er 164.000 kr.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur auk þess sem ein vika er til viðbótar fyrir námsmat. Kennsla hefst 16. október 2023 og stendur til 23. nóvember 2023. Námsmat fer fram dagana 27. nóvember – 1. desember.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Diljá Helgadóttir
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 2. október 2023.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.