Útskriftir


Útskriftir fara fram tvisvar á ári frá Háskólanum á Bifröst, í febrúar og júní. Þá útskrifast nemendur af öllum sviðum skólans í grunn- og meistaranámi, háskólagátt og endurmenntun. 

Háskólahátíðin er gleðilegur dagur þar sem nemendur, kennarar og starfsfólk koma saman og sjá má Bifrastarglampann svokallaða skína af hverju andliti. Fulltrúi nemenda af hverju sviði heldur ræðu og söngatriði er á dagskrá. Þá flytur rektor hátíðarræðu og nemendur eru verðlaunaðir fyrir framúrskarandi námsárangur.