Háskólastjórn 2023 - 2024

Stjórn Háskólans á Bifröst er skipuð fimm einstaklingum tilnefndum til tveggja ára í senn af eftirtöldum aðilum: Borgarbyggð, Háskólaráði Háskólans á Bifröst, Hollvinasamtökum Bifrastar, Sambandi íslenskra samvinnufélaga svf. og Samtökum atvinnulífsins. Þrír aðalmenn í stjórn eru tilnefndir annað hvert ár, en tveir aðalmenn í stjórn hin árin. Varamenn eru tilnefndir með sama hætti. Fulltrúaráð ákveður þóknun stjórnarmanna.

Stjórnarmenn mega ekki sitja í fulltrúaráði og þess ber að gæta að meirihluti aðal- og varastjórnarmanna sé hvorki í námi né störfum við Háskólann á Bifröst. Undirskriftir meirihluta stjórnar skuldbinda stofnunina.

Stjórn skólans mótar stefnu hans og setur honum reglugerð. Stjórn skal halda bókhald og skila ársreikningi á aðalfundi, endurskoðuðum af löggiltum endurskoðanda. Stjórnin skal fylgjast með fjárhag Háskólans á Bifröst, einkum með því að tekjur standi undir kostnaði og skuldbindingum.

Stjórn og rektor Háskólans á Bifröst gera fulltrúaráði grein fyrir fjárhag og rekstri skólans á aðalfundi hvers árs. Í stjórn Háskólans á Bifröst sitja:

Frá Borgarbyggð:
Aðalmaður:     Magnús Smári Snorrason
Varamaður:     Sigurður Guðmundsson
 
Frá Háskólaráði Háskólans á Bifröst:
Aðalmaður:      Auður H. Ingólfsdóttir
Varamaður:      Signý Óskarsdóttir
 
Frá Hollvinasamtökum Bifrastar:
Aðalmaður:      Ársæll Harðarson, formaður
Varamaður:      Hallur Jónasson
 
Frá Samtökum atvinnulífsins:
Aðalmaður:      Tómas Már Sigurðsson
Varamaður:      Páll Ásgeir Guðmundsson
 
Frá Sambandi íslenskra samvinnufélaga:
Aðalmaður:      Gunnur Líf Gunnarsdóttir
Varamaður:      Gunnar Egill Sigurðsson