Frá aðalfundi 2023

Fulltrúaráðsfundir hafa æðsta vald í málefnum háskólans er varða rekstur og fjármál. Háskólaráð er æðsta vald í innri málefnum háskólans samkvæmt reglugerð. Fulltrúaráð fundar a.m.k. einu sinni á ári og er sá fundur jafnframt aðalfundur Háskólans á Bifröst. Verkefni fundarins er að greina frá starfsemi háskólans og samþykkja ársreikning hans fyrir undanfarið rekstrarár.

Fulltrúaráð Háskólans á Bifröst er skipað 15 einstaklingum og fimm til vara.

Þeir sem tilnefna í fulltrúaráð Háskólans á Bifröst eru: Borgarbyggð, Háskólaráð Háskólans á Bifröst, Hollvinasamtök Bifrastar, Samband íslenskra samvinnufélaga svf. og Samtök atvinnulífsins.  Hver þessara aðila tilnefnir þrjá fulltrúa og einn til vara. Fulltrúaráð Háskólans á Bifröst skipa:

Fyrir Borgarbyggð:
Aðalmaður:  Guðveig Eyglóardóttir
Aðalmaður:  Helgi Eyleifur Þorvaldsson
Aðalmaður:  Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir
Varamaður:  Þórunn Unnur Birgisdóttir

Fyrir Hollvinasamtök Bifrastar:
Aðalmaður:  Tryggvi Haraldsson
Aðalmaður:  Anna Ólöf Kristjánsdóttir
Aðalmaður:  Erla Björg Eyjólfsdóttir
Varamaður:  Halldór Þorsteinsson

Fyrir Háskólaráð Háskólans á Bifröst:
Aðalmaður:  Ragnheiður I. Sigurgeirsdóttir
Aðalmaður:  Hlynur Finnbogason
Aðalmaður:  Sævar Ari Finnbogason
Varamaður:  Birgitta Ásbjörnsdóttir

Fyrir Samband íslenskra samvinnufélaga:
Aðalmaður:  Sigurbjörn Gunnarsson
Aðalmaður:  Hannes Karlsson
Aðalmaður:  Ólafur Sigmarsson
varamaður:  Reimar Marteinsson

Fyrir Samtök atvinnulífsins:
Aðalmaður:   Árni Grétar Finnsson
Aðalmaður:   Maj-Britt Hjördís Briem
Aðalmaður:   Heiðrún Björk Gísladóttir
Varamaður:   Páll Ásgeir Guðmundsson