Rektorar íslenskra háskóla hafa sent frá sér yfirlýsingu 21. nóvember 2014

Rektorar íslenskra háskóla hafa sent frá sér yfirlýsingu

Rektorar íslenskra háskóla hafa sent frá sér yfirlýsingu sem var einnig send öllum Alþingismönnum sem innlegg í umræðu um frumvarp til fjárlaga.

Í yfirlýsingunni stendur að Ísland sé á krossgötum í dag.

„Þjóðin er verulega skuldsett og erfitt er fyrir stjórnvöld og heimili að ná endum saman án þess að ganga enn frekar á þau lífskjör sem við viljum hafa á Íslandi. Til að standa við okkar skuldbindingar og tryggja lífskjör til framtíðar, þá er nauðsynlegt að efla til muna sköpun nýrra verðmæta.

“Aukin nýting náttúruauðlinda muni ekki standa undir þessari verðmætaaukningu án þess að sjálfbærni sé fórnað.

„Nauðsynlegt er því að auka til muna verðmætasköpun sem byggir á hugviti og sköpun. Í skýrslu frá McKinsey má finna sýnidæmi um hvað þurfi til að standa undir langtímahagvexti á Íslandi. Til að standa undir 4% árlegum hagvexti þarf að skapa ný verðmæti fyrir um 50 milljarða króna á hverju ári.“



Það sé vel þekkt um allan heim að háskólastarf sé meginundirstaða sköpunar verðmæta á grunni hugvits.

„Á Íslandi er hins vegar ekki brugðist við þörf á hugviti og sköpun með fjárfestingu í undirstöðu, heldur er þvert á móti dregið verulega úr fjármögnun háskólanna, en fjármögnun á hvern háskólanema er árið 2011 aðeins 84% af því sem hún var árið 2005, samkvæmt skýrslu OECD, eins og sjá má á mynd hér að neðan.“


 

Undir yfirlýsinguna skrifa:

Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
Björn Þorsteinsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
Erla Björk Örnólfsdóttir, rektor Háskólans á Hólum
Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri
Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst

 

Hér má lesa yfirlýsinguna á pdf.

 

 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta