Mikill áhugi á vaxtarklasa í Borgarbyggð 24. október 2014

Mikill áhugi á vaxtarklasa í Borgarbyggð

Vinnustofa vegna vaxtarklasaverkefnis í Borgarbyggð var haldin fimmtudaginn 23.október. Verkefnið er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst, sveitarfélagsins Borgarbyggðar og fyrirtækja á svæðinu.


Á vinnustofunni var farið yfir niðurstöðu vinnu síðustu mánuða á vegum skólans en tveir aðilar á vegum skólans hafa rætt við fjölda aðila. Á stofunni voru kynnt ýmis vaxtarverkefni í Borgarbyggð þar sem fram koma mörg spennandi og áhugaverð verkefni eru í deiglunni. Ennfremur var bent á ýmis verkefni sem enginn er að vinna að og vantar að setja í réttan farveg. Flest vaxtarverkefnin eru í ferðaþjónustu en ennfremur eru ýmis verkefni tengd matvælavinnslu og almennri þjónustu.
 

Miklar umræður sköpuðust um verkefnin og ýmsar hugmyndir voru reifaðar og skýrt kom fram að fjölmörg ónýtt tækifæri eru til uppbyggingar í Borgarbyggð. Mikið var rætt um nauðsyn þess að menn vinni saman og nýti þá stoðþjónustu sem í boði er. Á næstu vikum mun koma í ljós hvort sérstakur vaxtaklasi verður að veruleika þar sem stofnað er til formlegs samstarfs í kringum einstök vaxtarverkefni.
 

Starfsmenn Háskólans á Bifröst, Jón Bjarni Steinsson og Hallur Jónasson unnu að verkefninu undir leiðsögn sérstakrar verkefnisstjórnar á vegum Hákólans á Bifröst og Borgarbyggðar.

 

F.v. Jón Bjarni Steinsson, Kolfinna Jóhannesdóttir, bæjarstjóri Borgarbyggðar, Sigurður Ragnarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs, Vilhjálmur Egilsson rektor og Hallur Jónasson.

F.v. Jón Bjarni Steinsson, Kolfinna Jóhannesdóttir, bæjarstjóri Borgarbyggðar, Sigurður Ragnarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs, Vilhjálmur Egilsson rektor og Hallur Jónasson.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta