Máttur kvenna í Tansaníu kynnt á alþjóðlegri ráðstefnu 21. september 2016

Máttur kvenna í Tansaníu kynnt á alþjóðlegri ráðstefnu

Verkefnið Máttur kvenna í Tansaníu vakti athygli á alþjóðlegri ráðstefnu á  eyjunni Zanzibar. En eyjan er í Indlandshafinu og hluti af Tansaníu. Dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir, sviðsstóri þróunar- og alþjóðasviðs Háskólans á Bifröst, sem hefur leitt verkefnið, kynnti niðurstöður rannsóknar sem unnin var í tengslum við verkefnið.

Niðurstöðurnar varpa skýru ljósi á erfiðleika tansanískra kvenna til frumkvöðlastarfsemi. Þær eru bundnar yfir erfiðum heimilisrekstri og hafa takmarkaða möguleika á að taka þátt í atvinnusköpun. Konurnar þyrstir í að vera virkari utan heimilisins og vilja gjarnan brjótast úr viðjum vanans og menningarhefða sem heftir þær í nýsköpun og tengslamyndun utan heimilis.

Háskólinn á Bifröst mun halda áfram þátttöku í verkefninu, en næsta nýsköpunarnámskeið fyrir konur í Tansaníu hefur þegar verið fjármagnað m.a. með veglegum styrk úr samfélagssjóð Virðingar, Alheimsauði.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta