Ljósagangur í háskólum landsins til áminningar um jafnréttismál 2. október 2015

Ljósagangur í háskólum landsins til áminningar um jafnréttismál

Háskólar landsins standa saman að ljósagjörningi í hádeginu mánudaginn 5. október til að undirstrika mikilvægi mannréttinda og umræðu um jafnréttismál. Dagurinn markar jafnframt upphaf jafnréttisdaga og fræðsluviðburða um jafnréttismál sem fara fram í skólunum sjö.

Þetta er í fyrsta sinn sem skólarnir vinna saman að gjörningi tengdum jafnréttismálum en viðburðurinn hefur einnig skírskotun í Alþjóðlegt ár ljóssins á vegum Sameinuðu þjóðanna.

Útfærsla á ljósagjörningnum er í höndum hvers og eins skóla og munu sumir skólanna t.a.m. lýsa upp byggingar að utan en aðrir að innan. Alls staðar verða þó litir regnbogans í aðalhlutverki til að undirstrika mikilvægi umræðu um og baráttu fyrir mannréttindum.

Í næstu og þarnæstu viku munu skólarnir jafnframt bjóða upp á ýmiss konar fræðslu um jafnréttismál, bæði í formi fyrirlestra og veggspjalda en einnig í formi tónleika og annars konar listviðburða. Markmiðið með þeim öllum er að vekja stúdenta og starfsmenn skólanna og ekki síður gesti skólanna til umhugsunar um jafnréttismál á afar breiðum grunni og eru viðburðir í mörgum skólanna haldnir undir merkjum sérstakra jafnréttisdaga.

Nánari upplýsingar um jafnréttisdaga og viðburði tengda jafnréttismálum má finna á vefjum skólanna.

Háskólinn á Akureyri: http://www.unak.is/is/frettir/jafnrettisdagar-2015

Háskólinn á Bifröst: /

Háskólinn á Hólum: http://holar.is/

Háskóli Íslands og Listaháskóli Íslands: http://www.hi.is/adalvefur/dagskra_jafnrettisdaga_2015

Háskólinn í Reykjavík: http://www.ru.is/vidburdir/naestu/

Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri: lbhi.is

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta