Háskólahátíð í beinni útsendingu 9. júní 2017

Háskólahátíð í beinni útsendingu

Háskólinn á Bifröst nýtir sér framsækna fjarkennslutækni sína við útskrift nemenda á morgun, laugardaginn 10. júní, en útskriftin verður send út á Facebook Live.

„Útskrift nemenda í febrúar var einnig send út í beinni útsendingu og mæltist það vel fyrir. Enda afar ánægjulegt að geta leyft sem flestum að njóta þessa hátíðlega viðburðar með okkur t.a.m. fjarnemum okkar sem finna má um allt land og heim. Við vitum ekki betur en við höfum í vetur verið fyrsti háskóli landsins til að nýta okkur þessa tækni,“ segir Hjalti Rósinkrans Benediktsson umsjónarmaður kennslukerfa við Háskólann á Bifröst.

Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi og er allt nám við háskólann í boði bæði í fjar- og staðnámi.

Útskrifaðir verða 124 nemendur úr námi í verslunarstjórnun, Háskólagátt og úr viðskipta- laga- og félagsvísindadeild háskólans.

Hægt er að fylgjast með útsendingunni á Facebook hér og Youtube hér

 

 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta