Fjalladagatali Háskólans á Bifröst sumarið 2011 var hleypt af stokkunum nú á dögunum.
Gönguáhugafólk við skólann stendur sameiginlega að dagskránni og skipta þau fararstjórn á milli sín.
Yfirskrift ferðanna er ávallt það sama: Njótum þess sem náttúra Íslands hefur uppá að bjóða. Þegar hver ferð er búin setjum við svo inn smá ferðasögu.
21. júní: Sumarsólstöðuganga á 7 tinda í kringum Hafnarfjall (844 m)
Stórkostleg ganga sem enginn náttúruunnandi ætti að láta framhjá sér fara!! Gengið verður að kvöldi/nóttu á móti sólsetri/sólarupprás.
Göngutími: 4-6 klst.
Fararstjóri: Geirlaug Jóhannsdóttir
4. júlí: Vikrafell 840 m (rétt hjá Bifröst)
Dásamlega falleg ganga að fjalli sem líkist helst Keili.
Göngutími: 3-4 klst.
Fararstjóri: Stefán Sveinbjörnsson
26. júlí: Hraunsnefsöxl (ekki svo hátt....) (fyrir ofan Bifröst)
Tignarlegt fjall fyrir ofan Sveitahótelið Hraunsnef. Glæsilegt útsýni.
Göngutími: 2-3 klst.
Fararstjóri: Þórir Páll Guðjónsson, velunnari og verndari Bifrastar
Byrjun ágúst (óákveðin dagsetning): Hafnarfjall (844 m)
Falleg uppganga með dásamlegu útsýni yfir landið og miðin allan tímann.
Göngutími: 3-4 klst.
Fararstóri: Bryndís Hlöðversdóttir, rektor
12. ágúst: Baula (934 m)
Krefjandi og óvenjuleg ganga, ólík öllum öðrum fjallgöngum. Stórbrotið útsýnið verðlaunar ríkulega á toppnum! Þessi ferð er ekki fyrir lofthrædda.....sorry!
Göngutími: 4-6 klst. (fer eftir fjölda göngugarpa)
Fararstjóri: Sigrún Hermannsdóttir
Ferðirnar eru gjaldfrjálsar en fólk þarf að koma sér sjálft á staðinn. Nokkrar kröfur eru gerðar, þokkalegt gönguform, slatti af þakklæti, töluvert af náungakærleik og endalaus lífsgleði.