Meistaranám við háskólann á Bifröst sumarið 2009
Ágætu meistaranemar.
Meðfylgjandi eru ýmsar gagnlegar upplýsingar um meistaranámið í sumar.
Meistaranámið hefst mánudaginn 13. júlí 2009. Kennt er í þremur lotum og síðustu lotu lýkur föstudaginn 21. ágúst.
Skipulag meistaranáms sumarið 2009
Sunnudagur 12. júlí 2009
Kl. 11:00 - 15:00. Afhending lykla að herbergjum/íbúðum á háskólaskrifstofu
Kl. 15:00 - Gönguferð um háskólaþorpið
Kl. 16:00 - 16:15 í Hriflu. Starfsfólk skólans býður nýnema velkomna
Kl. 16:15 - 17:00 í Hriflu. Kennsla á Námskjá og INNU
Námskeið í boði í meistaranámi sumarið 2009
Hér má m.a. finna upplýsingar um námskeið, kennara og tímasetningar á námskeiðum sumarannar í viðskiptadeild, félagsvísindadeild og lagadeild. Námskeið í boði
Lífið utan skólastofunnar
Bifröst stendur í afar sérstöku og fögru umhverfi í miðju Grábrókarhrauni. Margar gönguleiðir eru í nágrenni Bifrastar og eru meistaranemar hvattir til þess að njóta staðarins og umhverfisins þegar færi gefst. Þá er meistaranemum boðið upp á ýmsar skemmitlegar og/eða fróðlegar uppákomur utan hefðbundinnar kennslu. Í atburðadagatali má sjá yfirlit yfir það sem í boði er. Atburðadagatal.
Námskjár
Námskjár er kennslukerfi sem sinnir allri miðlun rafrænna upplýsinga milli kennara og nemenda. Gegnum kerfið er hægt að nálgast námsefni er kennarar gera aðgengilegt, skila inn verkefnum, nálgast einkunnir, fylgjast með veffyrirlestrum ásamt fjölda annarra möguleika.
Leiðbeiningar um Námskjá
INNA
INNA er nemendaskráningarkerfi háskólans á Bifröst. Í INNU geta nemendur fylgst með námsferli sínum, skráð sig í námskeið, breytt lykilorðum o.fl.
Leiðbeiningar um skráningu í námskeið í INNU
Bókalistar í meistaranámi
Bókalistar í meistaranámi sumarið 2009
Stundatöflur
Stundatafla félagsvísindadeildar
Stundatatafla lagadeildar
Stundatafla viðskiptadeildar
Húsnæði
Hér má finna gjaldskrá húsnæðis fyrir meistaranema sumarið 2009
Athugið að ef húsnæði er tekið á leigu í fleiri en eina viku er veittur afsláttur. (sjá gjaldskrá). Ef leigðar eru 2-3 vikur er 10% afsláttur, ef leigðar eru 4-5 vikur er 15% afsláttur og ef leigðar eru 6 vikur er 20% afsláttur. Sjá lýsingu á húsnæði
Meðfylgjandi er krækja á umsóknareyðublað fyrir húsnæði: Umsóknareyðublað
Í umsókninni þarf að koma fram hvernig húsnæði óskað er eftir, hvað þið ætlið að leigja margar vikur og fjöldi fullorðinna og barna.Vinsamlegast athugið að ekki er víst að hægt sé að verða við óskum allra um húsnæði, en við reynum að koma til móts við nemendur eins og hægt er.
Hvað fylgir með herbergjum/íbúðum?
Í herbergjum/íbúðum eru húsgögn og allur almennur húsbúnaður.
Athugið þó að þið verðið sjálf að taka með ykkur hreinsiefni (uppþvottalög og sápur), moppur, tuskur, viskustykki, klósettpappír, leslampa, handklæði, sængur, sængurver og teppi.
Raflyklar
Meistaranemar geta fengið raflykla gegn skilagjaldi í móttöku skólans. Raflyklar veita aðgang að skólahúsnæði eftir lokun á kvöldin og aðgang að líkamsræktarsal, heitum pottum og gufubaði.
Úttekt við brottför
Úttekt þarf að fara fram við brottför. Panta þarf tíma fyrir kl. 11:00 brottfarardaginn og best að
vera tímanlega og panta 1-2 dögum áður þar sem oft eru margir að fara á svipuðum tíma. Úttektarsíminn er 695 8908, Klaudia.
Ekki er tekið út eftir kl. 17 og um helgar nema gegn samkomulagi a.m.k. 2 dögum áður (alda@bifrost.is)
Úttekt utan dagvinnutíma kostar 5000 kr. og er háð því að það sé starfsfólk til að sinna henni.
Sjá hér upplýsingar fyrir neðan um móttöku og skil á húsnæði.
http://www.bifrost.is/islenska/thjonusta/husnaedissvid/uttektir-skil-og-gatlistar/
Ef eitthvað er í ólagi þá er hægt að senda verkbeiðnir. Sjá upplýsingar hér að neðan.
http://www.bifrost.is/islenska/thjonusta/husnaedissvid/verkbeidnir/
Sjá einnig þjónustugjaldskrá hér að neðan ásamt húsreglum og starfsreglum um öryggisvörslu og áminningar.
http://www.bifrost.is/islenska/thjonusta/husnaedissvid/thjonustugjaldskra/
http://www.bifrost.is/islenska/thjonusta/husnaedissvid/husreglur-i-nemendagordum/
http://www.bifrost.is/islenska/thjonusta/husnaedissvid/oryggisvarsla-og-aminningar/
Kort af háskólaþorpinu
Tölvur nemenda
Ekki er þörf á að nemendur komi með tölvur sínar í sérstaka uppsetningu í tölvudeildinni áður en námið hefst. Flest það sem stilla þarf og setja upp geta nemendur sett upp sjálfir og nálgast allar upplýsingar og fengið leiðbeiningar um það á heimasíðu skólans undir flipanum Þjónusta/Tölvuþjónusta. Þar verður meðal annars hægt að nálgast myndband sem útskýrir hvernig framkvæma á skráningu netkorta, uppsetningu á prenturum, drifum og prentkvótaforriti.
Forrit
Nemendur geta eftir sem áður fengið Microsoft Windows, Microsoft Office fyrir Windows og Microsoft Office fyrir Apple Mac hjá skólanum ef þeir hafa ekki þessi forrit í vélum sínum. Þeir nemendur sem eru með Apple Mac og þurfa námsins vegna að keyra Windows/Microsoft Office á þeim vélum, fá líka forritið Fusion, þurfi þeir þess með. Forritin má nálgast í afgreiðslu skólans hjá þjónustustjóra.
Leikjanámskeið fyrir börn
Í sumar verður boðið upp á þrjú tveggja vikna leikjanámskeið í sumarbúðunum Paradísarlaut fyrir 6-13 ára krakka á Bifröst. Leikjanámskeiðin verða í gangi á meðan meistaranámið stendur yfir. Nánari upplýsinar
Allar nánari upplýsingar veitir umsjónarmaður meistaranáms, María Þorgeirsdóttir, maria@bifrost.is