Ráðstefna á vegum Háskólans á Bifröst og Neytendasamtakanna

Nýtt landslag - nýjar áskoranir

 

Staða landbúnaðar á Íslandi í breyttum heimi. Ráðstefna á Bifröst föstudaginn 13. apríl.

 

Óbreytt ástand: Hverjum í hag?

 

Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem efst er á baugi í ríkjandi þróun landbúnaðarumhverfisins hér á landi og útí heimi; hvetja til uppbyggilegrar umræðu um kosti og galla núverandi fyrirkomulags; ræða framtíðargildi breyttrar eða óbreyttrar landbúnaðarstefnu; og að lokum, þau tækifæri sem liggja inn í framtíð. Liggur framtíðin í óbreyttu ástandi? Ef ekki, hverju þarf að breyta í núverandi landbúnaðarstefnu til að tryggja bændum eðlileg kjör og sókn til fjölþættari atvinnutækifæra, - innan eða utan ESB? Eru bændur sáttir við status-quo? Hver er sýn bænda inn í framtíð?

 

Nokkrar spurningar sem leitast verður við að svara: Hverjir eru kostir og gallar núverandi fyrirkomulags; hverjir eru valkostir neytenda; hvernig er hægt að tryggja að hagsmunir bænda og neytenda fari saman eða er það óhjákvæmilegt að takmarka val neytenda til að gæta hagsmuna bænda? Hvaða leiðir má fara til að tryggja þokkalega afkomu bænda og sátt við neytendur og samfélagið? Viljum við hamla á móti ríkjandi þróun - eða laga hana að breyttum aðstæðum? Hvaða áhrif hefur aðild Íslands að WTO? Hver er þróunin þar innan og er sú þróun langt frá þeirri þróun sem á sér stað innan ESB? Hvaða áhrif hefur það á stöðu íslenskra bænda náist samkomulag um nýtt regluverk innan WTO?

Einnig verður komið inn á umræðuna um sjálfbærni, endimörk vaxtar í takmörkuðum heimi", siðferði, vistspor, lífræna framleiðsla, iðnaðarlandbúnað, fæðuöryggi og „grenndar"-framleiðslu.

Sérfræðingar á sviði landbúnaðar-, neytenda- og matvælamála halda fyrirlestra og hagsmunaðilar úr ólíkum undirgreinum atvinnugreinarinnar segja frá reynslu sinni.

 

 

Dagskrá föstudaginn 13. apríl.

 

Fyrirlesarar

10.30 - 10.40 Bryndís Hlöðversdóttir Rektor Háskólans á Bifröst

10.40 - 11.05 Þórólfur Matthíasson Hagfræðingur, prófessor, Háskóla Íslands 

11.05 - 11.35 Veli-Pekka Talvela Yfirmaður alþjóðamála í landbúnaðar-
og skógræktarráðuneyti Finnlands

11.35 - 12.00 Daði Már Kristófersson Náttúruauðlindahagfræðingur, dósent við Háskóla Íslands   

12.00 - 12.30 Kristín Vala Ragnarsdóttir Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ

 

12:30 - 13:30 Hádegismatur


 

13:30 - 15:30 Ýmis erindi  

Neytendasamtökin
Brynhildur Pétursdóttir, Neytendasamtökin (NS)

 

Landssamband Kúabænda

Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK

 

Lífræn ræktun og matvælaframleiðsla
Eygló Björk Ólafsdóttir, Móðir Jörð, Vallanesi

 

Fulltrúar launþega
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ

 

Sauðfjárræktin
Sindri Sigurgeirsson, sauðfjárbóndi

 

15:30–16:30 Hringborðsumræður (panel)

 

 

Smellið hér til að skrá þátttöku.  Einnig er hægt að skrá sig í síma 545 1200 (Neytendasamtökin).

Verð 3.000 kr. (hádegisverður innifalinn).

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri