Í hádeginu á miðvikudögum verður boðið upp á spennandi fyrirlestra í Hriflu. Leitast er við að hafa efnið sem fjölbreytilegast og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér má sjá hvaða fyrirlestrar eru bókaðir. Þeir verða auglýstir betur þegar að nær dregur. Þeir hefjast allir kl. 12:00 og standa til kl. 13:00, nema að annað sé tekið fram.
25. janúar:
Gunnar Thorberg, markaðsráðgjafi, ráðgjafarfyrirtækið Kapall: „Uppbygging á vefsvæðum og helstu leiðir í markaðssetningu á netinu"
Hægt er að sjá upptöku af fyrirlestrinum hér.
1. febrúar:
Finnur Sveinsson, hagfræðingur og umhverfisfræðingur og sérfræðingur í samfélagslegri ábyrgð hjá Landsbankanum: „CSR - from theory to practice"
Hægt er að sjá upptöku af fyrirlestrinum hér.
8. febrúar:
Katrín Oddsdóttir, Héraðsdómslögmaður: „Það var löglegt! Hefur ákæruvaldi misbeitt í pólitískum tilgangi á Íslandi?"
15. febrúar:
Ragnhildur Bjarkardóttir, MA í alþjóðaviðskiptum: „Köldustu gangsterarnir" Samningahegðun Íslendinga á alþjóðavettvangi 1997- 2007"
22. febrúar:
Inga Hlín Pálsdóttir, Forstöðumaður markaðssóknar Íslandsstofu „Innblásin af Íslandi" - Hver eru næstu skrefin í markaðssetningu á Íslandi eftir Inspired by Iceland?
29. febrúar:
Regína Ásvaldsdóttir, Framkvæmdastjóri þekkingarseturs um samfélagsábyrgð fyrirtækja „Úlfur í sauðargæru – nýjasta markaðsbragðið eða sameiginlegir hagsmunir fyrirtækja og samfélags?"
7. mars:
Ari Teitsson, fyrrverandi formaður Bændasamtaka Íslands og Stjórnarformaður Sparisjóðs Suður-Þingeyinga og Magnús Sveinn Helgason, Sagnfræðingur: Hátíðarfyrirlestur í tilefni 110 ára afmælis Sambands Íslenskra Samvinnufélaga „Samvinnuhugsjónin og samvinnurekstur: Draumórar og hugsjónamennska eða nauðsynlegur valkostur og hluti heilbrigðs efnahagslífs?"
14. mars:
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Dósent í lögfræði við Háskólann á Bifröst og varaformaður stjórnar FME: ,,Getur fjármáleftirlit hindrað hrun? Hvert er hlutverk FME og hvaða tæki hefur það til að sinna hlutverki sínu?"