Ingibjörg Rafnar Pétursdóttir.
Þróun mála á alþjóðavettvangi hefur leitt til þess að stefna Evrópusambandsins í utanríkis- og öryggismálum hefur fengið aukna athygli. Hingað til hefur umfjöllun verið mjög gagnrýnin á tilraunir ESB til þess að móta sameiginlega utanríkisstefnu aðildarríkjanna og almennt talin hafa skilað litlum árangri. Sagt er að aðildarríki ESB séu of ólík og að stofnanir sambandsins hafi ekki náð að hvetja til nægilegs samruna þeirra á milli og málamiðlunar í hagsmunamálum ríkjanna. Annað viðhorf hefur einnig komið fram sem felur í sér að ESB sé smám saman að þróa sérstöðu sína á alþjóðavettvangi, sem grundvallast á aukinni samheldni aðildaríkjanna um grunngildi í utanríkisstefnu. Þetta viðhorf er að miklu leyti byggt á hugmyndum um „soft power“ þar sem grunnstaðlar og -gildi (norms og values) spila stóran þátt. Í kúrsinum verður fjallað um þessar kenningar í samhengi við áhrif ESB á alþjóðavettvangi og stefnu sambandsins gagnvart öðrum ríkjum (utan ESB) og í mikilvægum deilumálum.
Kynnt í upphafi námskeiðs.
Engir undanfarar.
14 vikur.
15 % Ritgerð, 2000 orð
20% Ritgerð, 2500 orð
15% Þátttaka í umræðum
50% Lokaritgerð, 5000 orð. Skilafrestur tilkynntur síðar
Íslenska.