322. Ísland í evrópsku samstarfi

Verður kennt á haustönn 2010 ef næg þátttaka fæst. 

Umsjón:

Eiríkur Bergmann Einarsson.

 

Námskeiðslýsing:

Í námskeiðinu er utanríkisstefna Íslands til skoðunar, sérstaklega hvað varðar þátttöku í Evrópusamstarfi. Farið er ofan í saumana á fyrirhuguðum aðildarviðræðum við Evrópusambandið og meðal annars rætt um samskiptin við AGS og deiluna um Icesave-samningana. Orðræða Evrópuumræðunnar á Íslandi er greind auk þess sem rætt er um upphaf og eðli Evrópusamvinnu, EFTA samstarfið, EES-samninginn og Schengen-landamærasamstarfið. Einnig ef fjallað um ólík tengsl Norðurlandanna við Evrópusamrunann. Að auki eru möguleikar Íslendinga í samstarfsáætlunum ESB, svo sem á sviði mennta, menningarmála, æskulýðsmála og vísinda til skoðunar.

 

 

Námsmarkmið:

  •  Að nemendur skilji tengsl Íslands við Evrópusamrunann og geti greint bæði Evrópustefnu íslenskra stjórnvalda og þá flóknu þræði sem liggja á milli Íslands og umheimsins.

 

Lesefni:

Eiríkur Bergmann (2009). „Hið huglæga sjálfstæði þjóðarinnar“ - áhrif þjóðernishugmynda á Evrópustefnu íslenskra stjórnvalda. Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

 

Tengsl Íslands og Evrópusambandsins(2007). Skýrsla Evrópunefndar. Reykjavík. Forsætisráðuneytið. (Sjá hér: http://www.forsaetisraduneyti.is/media/frettir/SkyrslaEvropunefndar-.pdf)

 

 

Forkröfur:

Engir undanfarar.

 

Lengd:

14 vikur.

 

Verkefni:

Kynnt í upphafi námskeiðs.

 

Námsmat:

Skriflegt lokapróf á námskjá gildir 100 prósent. Þeir sem ekki komast í námsferðina til Brussel gera að auki 7 - 10 síðna ritgerð í samráði við kennara.

 

Tungumál kennslu:

Íslenska.

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri