322. Efnahagssamruni Evrópu

 

Umsjón:

Jóhanna Jónsdóttir

 

Námskeiðslýsing:

Í námskeiðinu eru fræðilegar forsendur aukins efnahagssamruna í heiminum á tuttugustu öld kannaðar. Áhersla er lögð á efnahagslegar forsendur samrunaferils Evrópusambandsins og stofnanir og málefni innri markaðar ESB. Tengsl á milli efnahags- og pólitísks samruna eru könnuð. Auk þess verður efnahagssamruni annarra stofnanna eins og t.d. EFTA, NAFTA og ASEAN skoðaður í samanburði við ESB. Að lokum er fjallað um efnahagssamruna í Evrópu í ljós fjármálakreppunnar þar sem velt er vöngum yfir framtíð innri markaðarins og evrunnar.

 

Námsmarkmið:

  • Að nemendur þekki skilgreiningar á efnahagssamruna og fræðilegar forsendur aukins efnahagssamruna í heiminum

  • Að nemendur kunni skil á helstu forsendum efnahagssamruna í Evrópu

  • Að nemendur þekki helstu stofnanir og stefnumál ESB sem tengjast efnahagssamruna

  • Að nemendur geri sér grein fyrir tengslum og togstreitu á milli efnahags-- og pólitísks samruna

  • Að nemendur þekki til annarra stofnanna, t.d. EFTA, NAFTA og ASEAN í samanburði við ESB með tilliti til efnahagssamruna

  • Að nemendur þekki áhrif fjármálakreppunnar á efnahagssamruna í Evrópu

 

 

Lesefni:

Willem Molle: The Economics of European Integration, fifth ed. (Aldershot: Ashgate Publishing Ltd, 2006)

 

Forkröfur:

Engir undanfarar

 

Lengd:

Sumarlota.

 

Verkefni:

Kynnt í upphafi námskeiðs.

 

Námsmat:

Fyrirlestur (20%), ritgerð (40%), próf (40%)

 

Tungumál kennslu:

 Íslenska.

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri