322. Aðferðafræði

 

Umsjón:

Eva Heiða Önnudóttir.

 

Námskeiðslýsing:

Í námskeiðinu verða kynnt helstu hugtök og vinnulag í rannsóknum. Farið verður í gegnum kenningasmíð, tilgátuprófun, úrtök, áreiðanleika, réttmæti, spurningagerð, eigindlegar og megindlegar rannsóknir. Kynntar verða nokkrar leiðir í gagnaöflun eigindlegra gagna eins og viðtöl, þátttökuathugun, greiningu á texta og fyrirliggjandi gögnum svo eitthvað sé nefnt. Farið verður í gegnum undirbúning og framkvæmd rannsókna, val á rannsóknaraðferð, kenningasmíð, formun tilgátna og framsetningu niðurstaðna. Fjallað verður um grunnhugtök í aðferðafræði; áreiðanleika, réttmæti, gegnsæi og siðferðisleg mörk rannsókna.

 

Námsmarkmið:

  • Að nemendur kunni skil á grundvallarhugtökum í aðferðafræði.

  • Að nemendur kunni verklag í rannsóknum.

  • Að nemendur þekki helstu rannsóknaraðferðir.

 

 

Lesefni:

Alan Bryman og Emma Bell. (2003). Business Research Methods. Oxford University Press; New York.

 

Martin W. Bauer og George Gaskell (ritstjórar). (2000). Qualitative Researching with Text, Image and Sound; A Practical Handbook. Sage Publications; London.

 

Rick H. Hoyle, Monica J. Harris og Charless M.Judd. Research Methods in Social Relations. (7unda útg.). Thomson Learning Inc.; Wadsworth.

 

Ítarefni

Friðrik H. Jónsson og Sigurður J. Grétarsson. (2007). “Gagnfræðakver handa háskólanemum”. (4ða útg.). Háskólaútgáfan; Reykjavík.

Ítarefni:

 

Jean McNiff og Jack Whitehead. (2002). „Action Research; Principles and Practice“. (2.útg.). Routledge Falmer; London

 

Forkröfur:

Engir undanfarar.

 

Lengd:

14 vikur.

 

Verkefni:

Kynnt í upphafi námskeiðs.

 

Námsmat:

Kynnt í upphafi námskeiðs.

 

Tungumál kennslu:

Íslenska.

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri