27. janúar 2009
Að lifa við EES samninginn - málstofa á vegum lagadeildar
 |
| Unnur Gunnarsdóttir |
Unnur Gunnarsdóttir skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu verður gestur á málstofu miðvikudaginn 28. janúar næstkomandi.
Yfirskrift erindis Unnar er: Að lifa við EES samninginn.
Í erindi sínu mun Unnur lýsa því pólitíska andrúmslofti sem EES-samningurinn var gerður í og þeim væntingum sem gerðar voru til hans. Einnig verður stiklað á stóru um þróun mála síðan.
Um hvað er EES-samningurinn og um hvað er hann ekki? Hvaða möguleika höfum við til að hafa áhrif á löggjöf ESB?
Um þessi atriði mun Unnur byggja á eigin reynslu frá störfum sínum hjá EFTA í Brussel. Að lokum veltir hún fyrir sér tilverunni innan ESB vs. innan EES fyrir litla Ísland, m.a. út frá umræðunni um afsal fullveldis.
Málstofan er á vegum lagadeildar Háskólans á Bifröst. Hún verður í Hriflu og hefst kl. 13.00.