Námið er skipulagt í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna.
Burðarfögin í náminu eru heimspeki og fræðigreinar lista. Fjölmörg önnur fög þræðast inn í kennsluna eins og til dæmis mannfræði, markaðsfræði, hönnun, tónmiðlun, menningarfræði, stjórnun, frumkvöðlafræði, arkitektúr og skipulag, ímyndafræði, skapandi skrif og miðlunarfræði.
Prisma er viðbrögð háskólanna við því ástandi sem skapast hefur á atvinnumarkaði á Íslandi í dag.
Prisma er þverfaglegt nám sem kennt verður í febrúar og mars 2009 og er metið til 16 eininga (ECTS) á háskólastigi. Námið nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Meginþáttur í aðferðafræði kennslu og fyrirkomulags er skapandi og gagnrýnin hugsun en burðargreinar eru fræðigreinar lista og heimspeki. Mörgum tengdum fögum er fléttað saman við meginþátt námsins s.s. ímyndafræði, menningarstjórnun, frumkvöðlafræði, hönnun og tíðaranda, myndmálssögu, tónlistarsögu og –miðlun, skapandi skrifum, aðferðafræði myndlistar og leikhúss, arkitektúr og skipulagi, miðlunarfræði, mannfræði, markaðsfræði og stjórnun. Að auki verður boðið upp á gestafyrirlestra einu sinni í viku þar sem sérfræðingar segja frá því sem er að gerast í stefnumótun, rannsóknum og nýsköpun í samfélaginu og utan landssteinanna.
Yfir 50 sérfræðingar koma að náminu
Yfir fimmtíu sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Jóhann P. Malmqvist, frumkvöðull og prófessor í verkfræði, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Sveinbjörn I. Baldvinsson, handritshöfundur, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri Reykjavíkur Akademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá Nýsköpunarmiðstöð, Halldór Guðmundsson rithöfundur, Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður.
Markmið með náminu
1. Þverfagleg þekking
Nemendur styrki þverfaglega menntun sína sem gerir þeim kleift að setja ólíkar starfsgreinar, fræðigreinar, hugmyndir og hluti í samhengi og starfa á fleiri sviðum en áður.
2. Fleiri verkfæri í verkfæratöskuna
Nemendur öðlist þau verkfæri, þekkingu, reynslu og stuðning sem geta nýst þeim til að efla stöðu sína sem uppbyggilegir, skapandi og gagnrýnir þátttakendur í samfélaginu og láta framsæknar hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum.
3. Menntun á háskólastigi
Að námi loknu fá nemendur diplóma sem metið er til 16 eininga (ECTS) á háskólastigi. Nemendur sem ætla sér frekari menntun við Háskólann á Bifröst eða Listaháskóla Íslands geta fengið hluta námsins metið inn í nám á bakkálár- og meistarstigi, að gefnum ákveðnum skilyrðum.
4. Umbreyting
Lykilorðið í náminu er umbreyting. Nemendur fá tækifæri til að gaumgæfa þær umbreytingar sem eru að eiga sér stað í samfélaginu útfrá fjölbreyttum sjónarhornum undir leiðsögn sérfræðinga. Í slíku umhverfi verða vandamál að tækifærum, hindranir að flóðgáttum og hugmyndafræðilegt hrun að upphafi á nýjum og spennandi tímum.
Skipulag námsins og fyrirkomulag
Kennsla fer fram á hverjum virkum degi í Reykjavík og í þrjá daga fer kennsla fram í Háskólanum á Bifröst. Gert er ráð fyrir nemendafjölda á bilinu 80-120 manns. Heildarfjölda nemenda verður skipt niður í smærri hópa sem hver hefur sinn hópstjóra eða umsjónarkennara. Námið er á háskólastigi og ætlað fólki sem hefur að lágmarki stúdentspróf eða jafngildi þess.
Náminu er skipt niður í þrjár lotur. Burðarfögin heimspeki og fræðigreinar lista ganga í gegnum allar loturnar og önnur fög sem raðast á loturnar þjóna þeim tilgangi að víkka ennfrekar út þekkingu nemenda, sjá samhengi á milli ólíkra hluta og auka úrval verkfæra í verkfæratösku hvers og eins. Í náminu fást nemendur við að tengja saman málefni sem er áberandi í þjóðlífinu þá vikuna eða þekkt hugtak, ástand, málefni, tilfinningu, sköpunarverk, hugmyndafræði eða regluverk við námsefni hverrar lotu og eigin reynsluheim. Vinnulag námsins byggir á aðferðafræði listgreina eins og leikhúsfræða, myndlistar og hönnunar sem og rannsóknarsamfélags hugvísindanna.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðum skólanna: www.lhi.is og www.bifrost.is. Skráning er hafin á http://www.bifrost.is/islenska/namsleidir/prisma-nytt-diplomanam/ og tekið er við umsóknum til 16. janúar 2009, til kl 16:00.
Nánari upplýsingar veitir:
Hrund Gunnsteinsdóttir forstöðumaður Prisma í síma 895 6371/552 4´000 eða á hrund@lhi.is