Aðgangsviðmið

Almenn lýsing

Stúdentspróf eða sambærileg menntun af hæfniþrepi 3 er skilyrði fyrir inngöngu í grunnnám við Háskólann á Bifröst.

Æskilegt er að þeir sem sækja um búi yfir grunnhæfni í upplýsingatækni en það þýðir t.d. að geta beitt grunnaðgerðum í ritvinnslu, töflureiknum, leitarvélum, sett saman glærukynningar og notað hugbúnað og forrit sér til stuðnings í námi. Einnig er lögð áhersla á fjölbreyttan orðaforða í íslensku og ensku og hæfni til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt í ræðu og riti svo gagnist í háskólanámi.

Aðgangsviðmið fyrir BA í HHS (heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði)

Nemandi skal hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Æskilegt er að nemandi búi yfir hæfni sem samsvarar:

  • 3. hæfniþrepi í stærðfræði, einkum á sviði algebru, falla, tölfræði og líkindafræði.
  • 3. hæfniþrepi í samfélagsfræði, einkum á sviði sagnfræði.
  • 3. hæfniþrepi í ensku, einkum hvað varðar tjáningu í ræðu og riti og lestur fræðitexta.
  • 3. hæfniþrepi í íslensku, einkum hvað varðar tjáningu í ræði og riti.