6. september 2008

 


Ræða dr. Ágústar Einarssonar, rektors Háskólans á Bifröst
við útskrift laugardaginn 6. september 2008

 

Kæru útskriftarnemar, starfsfólk Háskólans á Bifröst, aðrir gestir.

 

Síðustu útskrift á níutíu ára afmæli skólans er að ljúka. Í ár eru einnig tuttugu ár síðan Háskólinn á Bifröst varð að háskóla. Háskólinn á Bifröst er þannig einn af elstu skólum landsins en einnig með eldri háskólum.

 

Háskólinn á Bifröst er háskóli og framhaldsskóli, sem undirbýr nemendur fyrir frekara nám, en er auk þess símenntunarskóli. Hér kemur fólk aftur til náms eftir aðra kafla í lífinu og hingað koma fjölskyldur, oft með börn, og hér er fjöldi einstæðra foreldra. Þannig viljum við hafa þetta, fjölbreyttan gæðaskóla sem útskrifar forustufólk fyrir atvinnulíf og samfélag.

 

Við lítum ekki á Ísland eingöngu sem okkar markaðssvæði heldur einnig útlönd. Við byrjuðum í haust með nýja línu þar sem viðskiptafræði er kennd á ensku í grunnnámi og er þetta í fyrsta skipti sem slíkt er gert hérlendis. Ég tel að Íslendingar geti haft af því atvinnu að bjóða útlendingum vandaða háskólakennslu sem stenst allan samanburð í alþjóðlegum heimi fræðanna. Á miðöldum voru Íslendingar skáld konunga og sagnfræðingar fyrir alla Norður-Evrópu og voru þekktir sem slíkir. Ég vil að Ísland verði aftur þekkt á alþjóðlegum vettvangi sem menntaveita eins var fyrir 1.000 árum.

 

Þið, kæru útskriftarnemar, eigið að taka þátt í þessu með störfum ykkar og bera menntun ykkar gott vitni. Ég er stoltur af ykkur og bið ykkur að grípa tækifærin þegar þau gefast og lifa lífinu. Nám er ekki aðeins skóli og því hafið þið kynnst hér á Bifröst í öflugu félagslífi og í öllum vinunum sem þið hafið eignast hér undanfarin ár.

 

Jón Helgason, prófessor í Kaupmannahöfn og Borgfirðingur, orti eitt sinn:

 

Það var eitt kvöld að mér heyrðist hálfvegis barið,
ég hlustaði um stund og tók af kertinu skarið,
ég kallaði fram og kvöldgolan veitti mér svarið:
Hér kvaddi Lífið sér dyra, og nú er það farið.


 Ég bið ykkur að hugleiða þessi orð skáldsins. Það er svo merkilegt í lífinu að tækifærin eru alls ekki eins mörg og við höldum. Verið því alltaf vel vakandi fyrir því að haga lífi ykkar þannig að þið séuð hamingjusöm og gerið aðra hamingjusama.

 

Háskólinn á Bifröst er mjög vel meðvitaður um sérstakt hlutverk sitt í skólasamfélaginu. Skólinn er sjálfseignarstofnun með Samtök atvinnulífsins sem bakhjarl og er stoltur af því. Háskólinn á Bifröst er rekinn með hagnaði og við veljum nemendur af kostgæfni inn í skólann. Við höfum hert kröfur og aukið gæði námsins og leggjum mikla áherslu á að auka rannsóknir.

 

Umsóknir eru miklu fleiri en við getum veitt skólavist. Það eru núna 1.300 nemendur á Bifröst og hafa aldrei verið fleiri. Það eru forréttindi að læra á Bifröst. Menntun á Bifröst er sambærileg við menntun í góðum skólum í næstu löndum og það eru okkar viðmið. Við sækjum sífellt fleiri kennara til erlendra háskóla og hinar sjö meistaralínur okkar verða sífellt öflugri auk hinna fjögurra námsleiða í grunnnámi.

 

Ég vil efla Háskólann á Bifröst í háskólakeðju hringinn í kringum landið en orðið háskólakeðja er hugtak frá Bifröst. Ég hef oft rætt um að leiðin til að halda jafnvægi í byggð landsins er að efla menntun, sem skapar störf og tekjur, og efla menningu, sem skapar þá félagslegu umgjörð sem fólk vill búa í. Besta leiðin til þess er að efla háskólana á landsbyggðinni, háskólana á Bifröst, Akureyri, Hvanneyri og á Hólum. Nú reynir á stjórnmálamennina, fulltrúa almennings, en einungis einn af þessum skólum er ekki ríkisskóli, nefnilega Háskólinn á Bifröst.

 

Við á Bifröst erum þó einnig þéttbýlisskóli og það er mér ánægja að tilkynna að við stefnum að því að opna útibú á Reykjavíkursvæðinu á næstu mánuðum. Meira en helmingur af nemendum skólans, margir á höfuðborgarsvæðinu, stunda nám í blöndu af fjarnámi og staðnámi og þann þátt skólastarfsins viljum við efla með enn betri þjónustu.

 

Það er gaman að segja frá því að þrír af silfurverðlaunahöfunum í handknattleik frá Ólympíuleikunum í Beijing eru nemendur Háskólans á Bifröst. Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson eru í fjarnámi í viðskiptadeild og Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari íslenska landsliðsins, er í meistaranámi. Við erum stolt af þeim. Það eru ekki margir sem eiga þrjá silfurverðlaunahafa af Ólympíuleikum í sínu samfélagi.

 

Útskriftardagur er hátíðisdagur, en margt getur gerst á hverjum degi. Það vill svo til að einmitt á þessari stundu sem útskrift er hér á Bifröst er borinn til grafar Herra Sigurbjörn Einarsson biskup. Hann var einstakur maður og við sjáum eftir fólki sem okkur þykir vænt um. Við misstum hér á Bifröst góðan vin og félaga fyrir skömmu, Árna Vikarsson, sem við söknum mikið. Góðar minningar um Árna lifa með okkur öllum og þannig hefði Árni viljað að við minntumst hans.

 

Séra Sigurbjörn, eins og ég ólst upp við kalla hann, var fyrirmynd mín og margra annarra. Hann lifir í minningunni og ég vil vitna í ljóð sem hann valdi í eina af bókum sínum einmitt fyrir þennan dag 6. september, en ljóðið heitir 10 ára og er eftir Heiðrek Guðmundsson:

 

–     En vikurnar liðu að lokum samt.
Og léttur sem hind í spori
ég hljóp út í bylinn, sem brostinn var á
og beljandi kringum mig þyrlaði snjá.
Og þá var ég fljótur í förinni heim.
–     Því frostið var hlýtt
og hríðin sem vindblær á vori.

 

Séra Sigurbjörn kenndi okkur öllum manngæsku og kristilegt hugarfar betur en nokkur annar.

 

Munið, kæru útskriftarnemar og aðrir gestir, að samkennd og samhjálp gagnvart öllum þeim sem eiga um sárt að binda er ekki aðeins göfugt verkefni heldur skylda ykkar í nútíð og framtíð.


Þakka ykkur fyrir og Guð blessi ykkur öll. Hátíðinni er slitið.

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri