Ræða dr. Ágústar Einarssonar rektors Háskólans á Bifröst
við útskrift 6. febrúar 2010
Kæru útskriftarnemar, starfsfólk Háskólans á Bifröst, aðrir gestir.
Það eru 92 ár síðan þessi skóli var stofnaður en það var frostaveturinn mikla 1918. Ég þekkti til fólks sem fór fótgangandi úr Þingeyjarsýslu suður til Reykjavíkur til að setjast á skólabekk í hinum nýja skóla. Sú ferð tók marga daga í hörkufrosti haustið 1918. Fólk hefur oft lagt mikið á sig fyrir menntun.
Ég bið ykkur, kæru útskriftarnemar, að minnast þess að það eru forréttindi að hafa haft tækifæri að stunda nám eins og þið hafið gert undanfarin ár. Vísindin hafa sannað margt, m.a. að menntun tryggir ykkur betri lífskjör í framtíðinni en menntunin gerir ykkur einnig að vönduðu fólki ef þið nýtið menntunina af skynsemi.
Ég veit að nemendur héðan hafa verið og verða landi og þjóð til sóma og í forustu fyrir framfaramálum. Það er okkar aðalsmerki. Þið eruð Bifrestingar til loka lífs ykkar og það er heiður en einnig skuldbinding. Ég vil ekki heyra um neitt af ykkur að þið látið blindast af græðgi og siðblindu eins og við höfum séð mörg dæmi um undanfarin misseri. Takið virkan þátt í endurreisn þessa lands sem fóstraði ykkur af heilindum.
Hugsið til fjölskyldu ykkar sem fagnar með ykkur hér í dag og er stolt af ykkur; makar, börn, foreldrar og aðrir ættingjar. Auðvitað getið þið verið stolt af ykkar árangri en meira er um vert að aðrir geti verið stoltir af ykkur og Háskólinn á Bifröst er stoltur af ykkur. Þið eruð ungt fólk og ungt fólk á ekki aðeins að vera í forustu heldur á ungt fólk einnig að vera róttækt og ekki hika að feykja burt fúnum innviðum og setja nýja í staðinn. Eftirfarandi ljóð lýsir þessu:
„Fiðrildið skýst út úr túpunni.
Ljósið flöktir á vængjum þess.
Það húsvitjar hjá blómunum.
Það snertir hár unnustu þinnar andartak.
Ég vil virkja fiðrildin í baráttu fyrir réttlæti.
Einnig nokkrar fallega röndóttar broddflugur.“
Þetta ljóð er eftir Dag Sigurðarson skáld og uppreisnarmann sem lést fyrir aldur fram fyrir mörgum árum. Ég þekkti Dag og hann var góður drengur. Hann batt ekki hnúta sína eins og aðrir og hann gagnrýndi sitt samfélag óvægið. Ég vil sjá ykkur, kæru útskriftarnemar, með þessa róttæku sýn á okkar samfélag og ykkar nágrenni. Þið eigið ekki að taka neinu sem gefnu og ykkar leiðarljós á að vera það sem þið lærðuð hér að sýna drengskap og dugnað í öllum störfum.
Ég tók við starfi rektors í janúar 2007 og það hefur margt breyst hér við skólann og í samfélaginu. Fjárhagsstaða skólans var þá mjög slæm en það tókst að snúa henni við og skólinn var rekinn með hagnaði það ár. Síðan þá hefur reksturinn gengið vel en Hrunið setti strik í okkar reikninga eins og hjá öðrum. Það tókst að vinna vel út því með aðstoð starfsfólks og skólinn var rekinn með hagnaði í fyrra. Eigið fé skólans hefur aukist verulega undanfarin 3 ár. Lokið er allri fjárhagslegri endurskipulagningu varðandi nemendaíbúðir en síðustu endarnir voru hnýttir núna í janúar. Ég er ákaflega ánægður með þessa niðurstöðu. Þetta hefði aldrei verið hægt nema vegna þess að hér starfar frábært starfsfólk sem stendur saman að verkefnum ásamt góðri stjórn skólans.
Við höfum jafnframt aukið gæði námsins og hert kröfur til nemenda, kennara og annars starfsfólks. Núna eru 5 námsleiðir í grunnnámi og 8 í meistaranámi auk frumgreinanáms og símenntunar. Fjölgað hefur um 2 námsleiðir í grunnámi og 2 námsleiðir í meistaranámi á síðustu 3 árum. Fjarnámið gengur mjög vel og meistaranámið hefur verið eflt.
Skólinn fékk viðurkenningu mennta- og menningarmálaráðuneytisins til að starfa sem háskóli og var það mikill áfangi fyrir okkur að fá lofsamlega umsögn erlendrar sérfræðinganefndar. Kennaraliðið hefur verið eflt og nú nýlega luku 3 kennarar við skólann doktorsprófi við erlenda og innlenda háskóla. Rannsóknir hafa verið auknar og nýtt rannsóknamatskerfi hefur verið tekið upp. Sterk staða skólans endurspeglast í aukinni aðsókn en nú um áramótin byrjuðu vel á annað hundrað nýir nemendur.
Athyglisvert er að langflestir okkar útskriftarnemar ljúka BS eða BA námi á 3 árum og stór hluti meistaranema á 2 árum og flestir á innan við 4 árum. Virkni nemenda er líklega hæst á Bifröst af öllum háskólum hérlendis. Brottfall er lágt á Bifröst enda kröfur í námi og við innritun miklar. Það sóttu 1.400 manns um skólavist í fyrra og hafa aldrei verið fleiri en aðeins 700 voru innritaðir eða rétt um helmingur umsækjenda. Af nemendum skólans er rétt rúmur helmingur konur þannig að jafnræði milli kynja er mjög áberandi í öllum námsleiðum skólans. Nemendur hafa aldrei verið jafnmargir og núna eða 1.300 manns.
Skólagjöld við skólann voru óbreytt í 3 ár frá 2007 en hækkuðu lítillega í haust. Leiga hefur verið lækkuð mikið hér þannig að kostnaður við nám á Bifröst hefur lækkað að raungildi á síðustu árum um tugi prósenta en skólinn samt verið rekinn með hagnaði.
Góðir áheyrendur
Ein af ástæðum þess að ég geri stöðu skólans að sérstöku umtalsefni hér er sú að fyrir rúmum 3 árum var ég ráðinn rektor til 3ja ára, þ.e. til síðustu áramóta. Stjórn skólans fór fram á það við mig síðastliðið haust að ég gegndi starfinu lengur og féllst ég á það enda vildi ég ljúka hinni fjárhagslegu endurskipulagningu i tengslum við nemendaíbúðirnar. Því lauk á árangursríkan hátt núna í janúar, eins og fyrr sagði.
Ég hef ákveðið að láta af störfum í júní næstkomandi. Mitt síðasta verk sem rektor verður að útskrifa nemendur fyrstu helgina í júní. Ég er prófessor við Háskólann á Bifröst og mun gegna því starfi áfram og einbeita mér að kennslu og rannsóknum og vinna skólanum það gagn sem ég get. Skólinn stendur vel og mun starfa sjálfstætt áfram en engar sameiningar við aðra háskóla eru á döfinni. Þetta hefur verið ákaflega gefandi tími með góðu starfsfólki og góðum nemendum og dvölin fyrir okkur hjónin hér á Bifröst er okkur mjög verðmæt. Framtíð Háskólans á Bifröst er björt eins og framtíð ykkar kæru útskriftarnemar.
Þakka ykkur fyrir og Guð blessi ykkur öll.