Háskólaráð

Háskólaráð er æðsta vald í innri málum háskólasamfélagsins. Þar sitja rektor, aðstoðarrektor, framkvæmdastjóri kennslu og þjónustu, þrír fulltrúar kennara sem kennslu- og rannsóknarráð tilnefnir, einn fulltrúi annarra starfsmanna háskólans sem tilnefndur er á starfsmannafundi, þrír nemendur úr grunnnámi, einn fulltrúi nemenda frumgreinadeildar og einn fulltrúi meistaranema. Fulltrúar nemenda eru kjörnir af nemendum. Framkvæmdastjóri rekstrar og fjármála og fulltrúi hagsmunasamtaka íbúa eru með seturétt í háskólaráði með málfrelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar.

 

Í háskólaráði eru málefni háskólasamfélagsins til umfjöllunar og ákvarðanatöku en ráðið fer með stefnumörkun háskólans á sviði kennslu og rannsókna í samráði við kennslu- og rannsóknarráð. Í háskólaráði eru m.a. teknar ákvarðanir um sameiginlega kennslufræði háskólans, gæðamál, málefni er varða samskipti innan háskólasvæðisins almennt eða háskólasamfélagið sem heild. Þá eru kærur vegna úrskurða fagráðs til afgreiðslu og umfjöllunar í háskólaráði sem og úrskurðir og álit siðanefndar og viðurlög vegna brota á siðareglum. Ráðið fjallar auk þess um framkvæmd háskólareglna og viðurlög við brotum á þeim. Háskólaráð fundar að jafnaði mánaðarlega og eru fundargerðir þess birtar á vef skólans á eftirfarandi slóð: http://www.bifrost.is/islenska/um-haskolann/stjornsysla-og-skipulag/fundargerdir/

 

 

Háskólaráð 2011 - 12

Bryndís Hlöðversdóttir, rektor

Jón Ólafsson, aðstoðarrektor

Ingibjörg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri kennslu og þjónustu

María Einarsdóttir, fulltrúi starfsmanna

Guðmundur Ólafsson, fulltrúi kennslu- og rannsóknarráðs

Snæfríður Baldvinsdóttir, fulltrúi kennslu- og rannsóknarráðs

Þórir Páll Guðjónsson, fulltrú kennslu- og rannsóknarráðs

Alma Jónsdóttir, fulltrúi meistaranema

Hallur Jónasson, fulltrúi nemenda í grunnnámi

Brynjólfur Magnússon, fulltrúi nemenda í grunnnámi

Sædís Alexía Sigurmundsdóttir, fulltrúi nemenda í grunnnámi

Elísabet Guðrúnardóttir, fulltrúi frumgreinanema

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri