Fundargerðir
Háskólaráð, fundur nr. 95

Dags. 9.8.2007

Háskólinn á Bifröst, fundur háskólaráðs, miðvikudaginn 8. ágúst kl. 15.00 í Guðmundarstofu.

 

Mætt: Ágúst, Bryndís, Reynir, Jón Ól,  Ingibjörg G, Alda, Grétar, Gísli, Róbert, Ragnar.

Forföll boðuðu Barði, Júlíus, Ingibjörg Ingvadóttir, Einar Vald., Bjarni Jónsson, Elín Björg

Dagskrá:

  1. Fundargerðsíðasta fundar. Samþykkt.
  2. Kynning á samningi við Nýsih.f. Rektor greindi frá nýjum samningi við Nýsi um fyrirkomulag varðandi húseignir skólans. Umræður.
  3. Kynning á drögum að nýrri reglugerð skólans. Rektor fór yfir drög að nýrri reglugerð skólans sem hafa það fyrst og fremst að markmiði að stytta reglugerðina og gera hana skýrari. Fyrst fór hann yfir þær breytingar sem verið er að gera, en síðar yfir einstakar greinar. Nokkrar umræður urðu um drögin og efni þeim tengt, s.s. misserisverkefni og vægi þeirra í náminu.
  4. Næsta skólaár og skólasetning3. september/Almennur starfsmannafundur í upphafi skólaárs. (Liður 4 og 5 teknir saman). Rektor greindi frá því að setning skólans er fyrirhuguð 3. september og að þann sama dag verði starfsmannafundur og vinnufundur með kennurum.  Hvað nemendur varðar verði farið yfir praktísk mál þann dag og skólastarfið almennt kynnt. Afhending húsnæðis fer fram á föstudeginum á undan.
  5. Almennur starfsmannafundur í upphafi skólaárs. (Tekið með lið 4).
  6. Skipun fulltrúa í stjórn Nemendagarða. Tillaga um að Alda Baldursdóttir komi í stað Stefáns Kalmanssonar og Elín Björg Ragnarsdóttir komi í stað Þorvalds Hjaltasonar. Auk þeirra situr Einar Valdimarsson í stjórninni. Tillagan samþykkt.
  7. Viðurkenningarferli. Rektor greindi frá þeirri vinnu sem átt hefur sér stað vegna viðurkenningarferlisins en umfang hennar er orðið nokkuð mikið.  Skila skal gögnum til ráðuneytisins 3. september n.k.
  8. Breytingar á kennurum. Rektor greindi frá nokkrum breytingum á högum starfsmanna. Bryndís Hlöðversdóttir hefur hlotið framgang sem dósent en sinnir áfram aðstoðarrektorsstarfi og starfi deildarforseta lagadeildar. Einar K. Hallvarðsson hefur einnig hlotið framgang í dósentstarf og mun frá og með haustinu vera í fullu starfi í lagadeild. Herdís Þorgeirsdóttir mun vera rannsóknarprófessor við skólann og heyra beint undir rektor en hefur ekki lengur kennslu- eða stjórnunarskyldur í lagadeild. Njörður Sigurjónsson hefur verið ráðinn í 50% lektorsstöðu í félagsvísindadeild. Ásta Dís Óladóttir var ráðin fyrr á árinu í 50% dósentstöðu í viðskiptadeild, Jón Þrándur Stefánsson kemur í hlutastöðu dósents í viðskiptadeild. Vífill Karlsson hefur minnkað starfshlutfall sitt tímabundið og mun vinna að doktorsritgerð sinni, Eiríkur Bergmann Einarsson í félagsvísindadeild mun einnig frá og með áramótum minnka starfshlutfall sitt á meðan hann vinnur að doktorsritgerð. Birgir Magnússon í lagadeild og Ian Watson í félagsvísindadeild munu láta af föstu starfi að eigin ósk og voru þeim þökkuð vel unnin störf.
  9. Sparkvöllur. Greint frá því að innan skamms verði sparkvöllur tilbúinn á Bifröst. Rætt um mikilvægi þess að halda úti öflugu félagsstarfi fyrir yngri börnin einnig á Bifröst. Í ljósi þess að skólinn leggur áherslu á að vera fjölskylduvænn staður, þá er mikilvægt að halda úti góðu félagsstarfi fyrir alla aldurshópa.
  10. Önnur mál. Tillaga um að láta allar upplýsingar um einingar, m.a. á Vefnum, vera í formi ECTS. Samþykkt.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.00. Fundargerð ritaði Bryndís Hlöðversdóttir.



Til baka

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri