Háskólaráð, fundur nr. 112
Dags. 18.3.2010
Fundargerð háskólaráðsfundar miðvikudaginn 18. mars 2010 kl. 15 í Guðmundarstofu.
Viðstaddir: Ágúst Einarsson, Snorri Guðmundsson,Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, Ari Hermóður Jafetsson, Berglind Heiða, Aron Thorarensen í forföllum Valgeirs Más, Ólafur Nordgulen, Elín Blöndal, Eiríkur Bergmann, Einar Valdimarsson, Ásta Dís Óladóttir, Kári Joensen, Alda Baldursdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir.
Sigrún Hermannsdóttir ritar fundinn. Forföll boðuðu Jón Ólafsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Í upphafi var Ari Hermóður Jafetsson boðinn velkominn sem nýr formaður nemendafélagsins.
1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð skoðast samþykkt.
2. Hugmyndir um einföldun á skipulagi skólans
Rektor fór yfir hugmyndir að breyttu skipulagi. Nýja hugmyndin á að vera til einföldunar þar sem skipt yrði í tvö svið, þ.e. kennslu- og rannsóknasvið svo og rekstrarsvið og væru framkvæmdastjórar yfir hvoru sviði en þeir undirmenn rektors. Samkvæmt hugmyndinni verða engir deildarforsetar heldur umsjónarmenn með námsleiðunum. Rekstrarsvið er í raun sameining fjármálasviðs og húsnæðissviðs.
Tekið er fram að ekki er búið að ræða þessar breytingar innan stjórnar skólans, heldur er hér um kynningu að ræða. Rektor telur hugmyndirnar hafa meðbyr en vill bera hugmyndirnar undir háskólaráð og ræða. Telur hann að í þessu gæti falist betri nýting innan skólans og einfaldari boðleiðir. Umræður voru miklar og fengu hugmyndirnar góðar undirtektir hjá kennurum, öðrum starfsmönnum og nemendum.
3. Eftirfylgni viðurkenningar
Erlenda nefndin kom og ræddi við starfsmenn og nemendur og gekk það mjög vel. Nefndarmenn voru ánægðir og fyrstu drög að skýrslu þeirra er komin og er góðum orðum farið um okkar starf og nefndarmönnum þykir starfsemin vera að þróast mjög í rétta átt. Tvær aðrar úttektir eru í gangi í tengslum við viðskiptanám og laganám á Íslandi.
4. Uppskeruhátíð vegna misserisverkefna
Hugmynd sem borin var upp á háskólaráðsfundi verður hrint í framkvæmd. Eiríkur og Njörður útfærðu hugmyndina. Varnirnar munu verða vikuna 20.-21. apríl. Uppskeruhátíðin verður síðan á föstudeginum þar sem verðlaun verða veitt. Þetta fékk góðar undirtektir.
5. Skólastarfið
Vikufrí verður áður en sumarlota byrjar. Fólk hvatt til að hvetja fólk til að sækja um nám á Bifröst og bent á að nemendur okkar eru bestu talsmenn skólans.
Fulltrúi nemenda LD bar upp fyrirspurn vegna próftöflu. Próf virtust skarast í LD þegar hún var birt, en Guðrún Erla breytti því hins vegar strax og á hún þakkir skildar fyrir að bregðast vel og skjótt við.
6. Erindi frá Nemendafélaginu
Ari kynnti fyrirspurnir frá miðstjórn nemenda.
1) Númerakerfi á prófum. Umræða sem kemur reglulega upp, hefur kosti og galla. Rektor sagði að þetta yrði rætt aftur meðal kennara skólans.
2) Skráningu á hverjir skoða lokaritgerðir en það er hugsað út frá möguleikum á ritstuldi. Nú verða lokaritgerðir eru settar inná Skemmuna og ekki er hægt að fylgjast með hverjir skoða innan hennar. Ritgerðirnar þurfa að vera aðgengilegar en erfitt að fylgjast með lestri þeirra.
3) Yfirseta/ viðvera kennara í prófum. Upplýsingar um viðveru kennara í prófum stangast á á ensku síðu skólans og þeirri íslensku. Rektor hvatti nemendur til að láta vita ef svona misræmis gætti á heimasíðunni. Rektor bar upp spurningu hvort fulltrúar nemenda væru að gæta nógu vel að hagsmunum fjarnema. Fulltrúi nemenda VD taldi fjarnema þurfa að bera sig eftir því að máli þeirra væri talað á háskólaráðsfundum.
4) Sjónarhóll, fyrirspurn um stöðu. Sömu deilumál og áður eru í gangi og lending liggur ekki fyrir. Málinu hefur verið áfrýjað. Hefur engin áhrif á skólann að sögn rektors fyrir utan óþæginda og fjölmiðlafárs. Ekkert nýtt er í málinu og það bíður eftir að fara fyrir hæstarétt.
7. Opni dagurinn sumardaginn fyrsta 22. Apríl
Opni dagurinn verður vel auglýstur í ár. Til að vel takist til er krafist þátttöku allra og virkni. Skólinn mun leita til nemenda varðandi þrif fyrir daginn og starfa á deginum sjálfum. Markmiðið er að gera daginn veglegri en verið hefur. Útskriftarfélagið hefur sýnt áhuga á að koma að skipulagningu.
8. Önnur mál
• Fjármálastjóra þökkuð vatnsvélin sem komin er á kaffihús. Einnig voru nemendur ánægðir með að þurfa ekki lengur að greiða fyrir bollana á kaffihúsinu.
• Fulltrúi kennara LD spurði hvort framhald hefði orðið á nefndarstarfi endurskoðunarnefnda háskólanna innan menntamálaráðuneytis. Rektor kvað starfið hafa hálf dottið upp fyrir og ekkert áþreifanlegt væri gangi. Ráðuneytið virðist ekki hafa tekið forystu í málinu þó það kalli til funda. Niðurskurður á næstu 3 árum er í umræðunni
• Búið er að samþykkja samstarf við HÍ á nýju meistaranámi í menningarfræðum. Einnig er verið að reyna að undirbúa samstarf við HR og HA. Enginn samruni er þó ræddur. Niðurstaðan er að við verðum að treysta á okkur sjálf og stólum á engan.
• Fulltrúi nemenda benti á að samkvæmt reglugerð ætti að birta allar fundargerðir, einnig deildarfunda. Rektor sagði að því yrði kippt í liðinn.
Fundi slitið 16.30
Til baka