Háskólaráð, fundur nr. 111
Dags. 27.1.2010
Fundarháskólaráðsfundar miðvikudaginn 27. janúar 2010 kl. 15
í Guðmundarstofu.
Ágúst Einarsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Jón Ólafsson, Guðjón Þór Guðmundsson, Valgeir Már Levý, Sigríður Bylgja, Snorri Guðmundsson, Eiríkur Bergmann, Alda Baldursdóttir, Ólafur Nordgulen og Sigrún Hermannsdóttir sem ritaði fundargerð. Boðuð forföll: Ásta Dís, Elín, Einar, Kári og Ingibjörg.
1) Fundargerð síðasta fundar
Samþykkt án athugasemda.
2) Skólastarfið
Fleiri nemendur komu inn um áramót en gert hafði verið ráð fyrir, einkum í fjarnámi. Um 90 manns byrja í Prisma í næstu lotu. Önnin á Bifröst virðist fara vel af stað. Rektor kallaði eftir skoðun nemenda á gengi skólastarfsins. Nemendur voru sammála góðu gengi og hvatti rektor þá til að taka vel á móti nýnemum. Íbúðir á svæðinu eru betur nýttar en á sama tíma í fyrra, þannig að einnig er aukning í staðnámi.
3) Eftirfylgni viðurkenningar skólans og sjálfsmatsskýrslur
Rektor rifjaði upp ferlið í kringum viðurkenninguna 2008 og nú er komið að því að fylgja henni eftir. Erlend nefnd mun koma á svæðið og hitta fólk, starfsmenn og nemendur, til að fylgja viðurkenningunni eftir. Formaður nemendafélagsins var m.a. beðinn um að finna nemendur sem munu hitta þessa nefnd.
Taka á út allt viðskiptafræði- og laganám á landinu. Verið er að vinna vandaðar sjálfsmatskýrslur fyrir laga- og viðskiptadeild fyrir þessa úttekt.
4) Kaffihúsið
Breytingar eru í vændum á kaffihúsinu. Vegna áskoranna frá nemendum og starfsfólki um breytingar á fyrirkomulagi afgreiðslu matar á kaffihúsinu heimsóttu Einar S. Valdimarsson og Gunnar Garðarsson mötuneyti annarra skóla og könnuðu aðstæður. Niðurstaðan er sú að breyta fyrirkomulaginu á Kaffi Bifröst þannig, að áfram verður boðið uppa heitan mat í hádeginu, en hann verður framvegis skammtaður af starfsmanni. Einnig verður hægt að kaupa stóran skammt eða lítinn skammt af salat eða súpu og brauð. Útfærslan ekki endanleg en verður kynnt síðar. Breytingunum var fagnað af fundarmönnum almennt.
Einnota kaffibollarnir verða seldir sérstaklega af umhverfisástæðum. Mun þetta vonandi leiða til þess að fólk temji sér að nota varanlega bolla en ekki einnota mál. Verið er að sýna vilja til aukinnar umhverfisvitundar á svæðinu en verið hefur. Formaður Nemendafélags sagði útskriftarfélagið vera að undirbúa að tilboð í hitakönnur. Gagnrýni kom fram um hversu lítið kaffi kæmi úr kaffivélinni fyrir hvern kr. 50.
Fulltrúi kennara FD ræddi nýtingu kaffihússins almennt. Hann stakk upp á því að búa til nefnd til að glæða kaffihúsið lífi og efla það sem félagslegan vettvang. Hugmyndin fékk góðar undirtektir. Bubbi Morthens hefur óskað eftir að fá að spila á kaffihúsinu í hádeginu 22. feb.
5) Erindi frá Nemendafélaginu
a) Formaður Nemendafélagsins kynnti Framadaga og væntanlega heimsókn þeirra sem að þeim standa.
b) Lögð voru fram drög að siðareglum fyrir fulltrúa í Háskólaráði, Nemendafélagi og á húsnæðissviði. Framtakinu var tekið fagnandi.
c) Formaður Nemandafélags reifaði hugmynd að BIFRASTARHELGI, sbr. t.d. Fiskidaginn mikla á Dalvík. Samvinnu yrði leitað við Skógræktina og ætlunin er að ná til gamalla Bifrestinga. Hugmyndin að dagsetningu er næst síðasta helgin í júní sem er næst síðasta helgi sumarannar. Rektor var mjög hrifinn og taldi að svona dagur gæti orðið skólanum mikil lyftistöng.
d) Misserisverkefnin. Enn ein umræðan um samræmi einkunna. Rektor svaraði þannig að ein reglugerð væri yfir einkunnagjöf og frá henni verður ekki vikið. Rætt um tékklista sem kennarar fylltu út væri út varðandi skýrsluna og frágang sem nemendur fengju að sjá að einkunnagjöf birtri. Vilja nemendur þannig fá aukið tækifæri til að læra af mistökum sínum. Forseti FD lagði áherslu á að vörnin sjálf væri endurgjöfin og var ósáttur við umræðuna og framburð nemenda. Misserisverkefnin væru ekki námskeið og ekki próf. Eðli þeirra sé að gagnrýna eigi þau, en ef nemendur vilji skýrslugerð tilbaka, megi allt eins sleppa vörninni. Þá er þetta orðið eins og hvert annað verkefni. Hins vegar mætti vera að útskýra þyrfti betur einkunnagjöfina. Mögulega væri líka lógískara að gefa ekki einkunn, heldur staðið/fallið. Fulltrúi nemenda FGD sagðist hafa skynjað mikla óánægju meðal nemenda hvað varðar einkunnagjöf í síðustu önn. Fulltrúi nemenda FD sagði að þetta skyti skökku við að vörnin sjálf væri öll endurgjöf verkefnis en gilti samt ekki nema 15%. Kennarar á fundinum þeirrar skoðunar að ef nemandi skildi ekki endurgjöfina eftir 2 tíma gagnrýni og umræðu, þá væri eitthvað verulega bogið við ferlið. Fulltrúi kennara FD fagnaði umræðunni um misserisverkefni, enda eitt af einkennum skólans. Nefndi dæmi frá Haag þar sem allar varnir væru framkvæmdar á sama degi og enduðu svo á uppskeruhátíð. Bestu verkefnin fá verðlaun og lyfti þetta verkefnunum á hærra plan. Leggur til að efna til svona uppskeruhátíðar með nemendum og kennurum. Þetta fékk góðar undirtektir. Fulltrúi nemenda LD sammála því að vörnin ætti að skila flytjendum nægilegri gagnrýni á verkefnið sitt og líta þurfi á varnir sem tækifæri en ekki kvöð.
e) Starfsfólk hvatt til að mæta á Bifróvisíon.
6) Fundur í Borgarnesi 30. Janúar
Jón Freyr Jóhannsson mun halda utan um Stefnumót 2010 og ritarar munu koma héðan úr hópi nemenda. Rektor hvatti til þátttöku. Forseti LD lagði áherslu á létt yfirbragð samkomunnar og barnapössun yrði í boði. Mikilvægt væri að við myndum sýna að við viljum taka þátt og hafa skoðun.
7) Útskrift 6. febrúar
Rektor hvatti til góðrar umgengni í kringum útskrift og áréttaði að taka tillit á vinnuhelgum fjarnema og veita eðlilegt næði til náms og hvíldar.
8) Markaðsmál
Hlé hefur verið gert á mánaðarlegum tónleikum HB. Mögulega verður hugað að öðrum menningartengdum viðburðum.
Oscar Clausen mætti á fundinn og kynnti markaðsmál skólans. Ætlunin er að létta ímynd skólans auk þess að auka áherslu á akademíska hlið skólans. Innra net verður búið til og er ætlunin að létta forsíðuna til að auðvelda aðgengi þeirra sem ekki þekkja til. Myndband hefur verið búið til sem unnið var eftir að viðtöl voru tekin við menntskælinga og greina upplifun þeirra og skoðun. Menntskælingar voru leiddir um svæðið og var það skoðun markaðsstjóra að það stækkaði ímynd krakkanna á svæðinu. Myndbandið er byggt upp miðað við þessa reynslu og upplifun. Reynt að sýna fram á hvað er í gangi hér og hvað er í boði. Myndbandið verður frumsýnt 20. febrúar.
Öllum stærri framhaldsskólum í Rvík hefur verið boðið að koma hingað í heimsókn. Rektor lagði áherslu á að ekki allir fengju inngöngu í skólann, heldur sé vandað til við valið.
Oscar hvatti til að nemendur og starfsfólk léti orðið ganga til að auglýsa Opna daginn því vilji væri til að hlúa að þessum degi og sinna honum vel.
Fulltrúi kennara FD spurði útí með hvaða hætti ætti að styrkja akademíska ímynd skólans. Oscar svaraði því til að gefa ætti út e.k. yfirlitsbækling. Myndir af kennurum við kennslu. Meðfylgjandi verður síðan lausblöðungar fyrir hverja deild og námsbraut fyrir sig.
Formaður Nemendafélagsins bar upp fyrirspurn um hvort áhugi væri fyrir því að nemendur mynduðu hóp á sviði markaðsmála sem m.a. gæfu kost á sér að vera markaðsstjóra innan handar við móttöku gesta og var vel tekið í það.
9) Önnur mál
a) Ritstuldarmálið. Rektor reifaði málið. Formleg kæra barst og þetta er flókið ferli sem hefur verið skoðað frá öllum hliðum, m.a. með utanaðkomandi sérfræðingum. Niðurstaðan er sú að um ritstuld var að ræða og einkunn var afturkölluð og þar með meistaragráða nemandans. Málinu er lokið af hálfu skólans og beðið er viðbragðs nemanda ef einhver verða. Fjölmiðlum hefur verið gert ljóst að niðurstaða sé fengin. Fulltrúi nemenda LD spurði um möguleg úrræði nemanda. Rektor svaraði því til að hann hefði möguleika á að kæra niðurstöðuna til áfrýjunarnefndar háskólastigsins eða óska eftir við skólann að fá að skrifa nýja ritgerð. Slíkt verður metið ef til þess kemur. Forseti LD taldi að vandað hafi verið til formsatriða og andmælaréttar í þessu máli. Vandað var verulega til textasamanburðar. Með rafrænum aðgangi að ritgerðum þar sem hægt er að keyra saman gagnagrunna verður auðveldara að leita uppi ritstuld í framtíðinni.
b) Rektor ræddi möguleika nemenda að ljúka námi án lokaritgerðar með því að fá diplómaplagg í hendurnar. Hér er aðallega verið að líta til menningarstjórnunar þar sem ekki er hægt að ljúka námi án ritgerðar.
c) Námstími nemenda, á flestan hátt á eðlilegum tíma og má því álykta að við séum að ná mikilli virkni nemenda en flestir klára grunnnám á 3 árum.
d) Formaður Nemendafélagsins fagnaði komu Stefáns Svavarssonar til skólans. Spurði hvort hugað hafi verið að fjölgun viðskiptalína, sbr. endurskoðun. Rektor segir svo ekki vera. Ekki meira pláss fyrir t.d. meistaranám í endurskoðun á markaðnum, jafnvel þó Stefán sé staðsettur hér.
e) Fulltrúi nemenda LD ræddi persónulega reynslu af prófayfirsetu. Hann var einn í stofu í sjúkraprófi í Eignarrétti þar sem enginn sat yfir. Verður skoðað.
Fundi slitið kl. 17.00
Til baka