Fundargerðir
Háskólaráð, fundur nr. 110

Dags. 2.12.2009

Fundargerð háskólaráðsfundar miðvikudaginn
2. desember 2009 kl. 15 í Guðmundarstofu.

Mættir: Ágúst Einarsson, Ásta Dís Óladóttir, Einar Valdimarsson, Guðjón Þór Guðmundsson, Valgeir Már E. Levy, Snorri Guðmundsson, Jón Ólafsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Alda Baldursdóttir, Eiríkur Bergmann, Kári Joensen, Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, Berglind Heiða Sigurbergsdóttir og Elín Blöndal. Bryndís var veik og Böðvar boðaði forföll. Sigrún Hermannsdóttir ritar fundargerð.


1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt.


2.    Tillögur um reglur um réttindi og skyldur nemenda, framhald umræðu

Elín Blöndal fór yfir tillögurnar. Ræddi hún fjölbreytta samsetningu háskólaráðs og vandamál því tengdu. Lagði hún áherslu á nauðsyn þess að háskólaráð hefði stefnumótandi hlutverk frekar en dómsvald. Umræða:  Fulltrúi meistaranemenda taldi tillögurnar ekki gæta hags nemenda þar sem þær snúist um að færa vald til rektors og frá háskólaráði. Rektor lagði áherslu á enn væru þrír möguleikar í stöðunni opnir, þ.e. fresta málinu, hafa óbreytt ástand eða setja reglur um réttindi og skyldur en breyta ekki reglugerðinni. Óskaði hann eftir frekari umræðu um þessa möguleika. Niðurstaða umræðunnar var að málið verður skoðað áfram í hópi 3-4 fulltrúa í háskólaráði.

 
3. Skólastarfið

Ró er yfir skólastarfinu. Rektor óskaði þó eftir umræðu. Fulltrúi nemendafélags fagnaði dagsetningu skólaslita.

 
4. Staða mála hjá opinberum aðilum, ríki og sveitarfélagi

Lítið hefur gerst þar. Stjórnvöld halda sig við niðurskurð í menntamálum. Bág staða Borgarbyggðar bætist þó við sem vandmál.
 

5.       Erindi frá Nemendafélaginu

• Nemendur lögðu áherslu á hversu vel atvinnulífið tæki á móti nemendum frá Bifröst. Spurning um að koma því á framfæri.

• Ekki á að leggja fyrir verkefni í prófaviku. Dæmi tekið úr faginu Sustainable Business.  Forseti FD svaraði því til að hann teldi að þetta hefði verið vegna samkomulags nemenda og kennara.  Í þessu tilfelli væri um próflausan áfanga að ræða þannig að verkefni í síðustu viku væri ekki óeðlileg.  Skil verkefna eru heimil í síðustu kennsluviku, þó ekki megi leggja fyrir verkefni í þeirri viku.

• Fyrirspurn um að taka próf á Bifröst undir bif-númerum. Rektor minntist á fyrri umræðu þar sem bæði eru kostir og gallar við það kerfi. Fulltrúar nemenda hvöttu skólayfirvöld að taka afstöðu og afgreiða málið. Númerakerfið var aflagt í HÍ eftir misjafna reynslu.

• Áhyggjur lýst yfir að nemendur milli ára næðu ekki nógu vel saman.

• Fulltrúi nemenda spurði hvort ekki væru reglur um viðveru kennara þegar lokapróf væru tekin. Kennslustjóri skýrði frá því að símhringingar virkuðu mjög vel í fjarnámi.

• Nemendur óska eftir að fá að taka virkari þátt í markaðssetningu skólans.

• Nemendur mjög sáttir við nýja starfstengingu við atvinnulífið. Starfsdagur FD gekk mjög vel.

• Fyrirspurn um af hverju prentkvóti flyttist ekki milli ára. Rektor sagði að heimilt hefði verið að færa milli anna innan skólaársins að ósk nemenda. Frekari heimildir tengjast m.a. umhverfismálum.

• Leikskólinn lokar kl. 16 en í sumum fögum endar tíminn 16.45 og gæta þarf þess að barnafólk sé ekki í þessum síðasta verkefnatíma. Ekkert mál er að flytja fólk á milli verkefnahópa. 

• Nemendur óskuðu eftir aðgengi að vatnstönkum á göngunum. Fjármálastjóri mun skoða að setja upp vatnskrana.

• Fyrirspurn kom um matseðil kaffihússins. Óánægja ríkir með að sama verð sé á súpu/salat og súpu/salat/heitur matur.

• Bent á að kennarar sem koma frá Reykjavík þyrftu ítarlegri kennslu á námsskjá.

 
6. Önnur mál

Hugmynd kom fram um að selja pappamálin á kaffihúsinu. Umræða um að reyna að taka forystu í umhverfismálum.  

Mikil umræða var um háskólakerfið og háskólana í samfélaginu. Það gætir misskilnings um stöðu Bifrastar, m.a. hvernig skólinn stæði fjárhagslega, en stað hans er góð. Fyrirspurn um hvort kynningaráætlun væri í gangi og hvernig væri hægt að koma jákvæðum fréttum áfram á framfæri. Sjónarhólsmálið hefur valdið okkur vandræðum og erfitt að leiðrétta rangfærslur.

Næsti háskólaráðsfundur verður í janúar 2010.

 



Til baka

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri