Fundargerðir
Háskólaráð, fundur nr. 109

Dags. 23.9.2009

Fundargerð háskólaráðsfundar


Miðvikudaginn 23. september 2009 kl. 15 í Guðmundarstofu

 

Mætt: Ágúst Einarsson, Ásta Dís Óladóttir er erlendis, Ingibjörg Þorsteinsdóttir er starfandi deildarforseti LD í fjarveru Bryndísar Hlöðversdóttur til loka október, Jón Ólafsson (yfirgaf fundinn kl. 15:40), Kári Joensen, Ingibjörg Ingvadóttir mætti í stað Elínar Blöndal sem er í barnsburðarleyfi, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Sigrún Hermannsdóttir, Guðjón Þór Guðmundsson, Ólafur Nordgulen, Snorri Guðmundsson, Berglind Heiða Sigurbergsdóttir, Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir og Valgeir Már E. Levy
 
Rektor setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna, sérstaklega hina nýkjörnu fulltrúa nemenda. Gengið var til dagskrár.
 
1. Fundargerð síðasta fundar var send út með hefðbundnum hætti og ekki bárust athugasemdir og skoðast hún samþykkt. 

 

2. Nýtt háskólaráð. Fulltrúar kynntu sig. Ítrekað var að trúnaður ríki um málefni rædd á háskólaráðsfundum en fundargerðir eru birtar á vef skólans.

 

3. Nýlegar breytingar á reglugerð (minni háttar lagfæringar). Rektor kynnti minni háttar breytingar sem stjórn skólans hefur gert á reglugerð skólans. Spurt var sérstaklega um ritstuldarákvæðið og hvort þetta væri nýtt ákvæði. Rektor kvað orðið ritstuldur vera nýtt í reglum af þessu tagi en hann væri brot á reglum og með þessu væri verið væri að herða á slíku enda ritstuldur vaxandi vandamál í nútíma háskólasamfélagi.

 

4. Tillögur um reglur um réttindi og skyldur nemenda skv. 51. gr. c liðar reglugerðar. Það ber að setja slíkar reglur skv. háskólalögum og voru lögð fram á fundinum drög að reglum sem voru samin af Elínu Blöndal prófessor. Þessi drög voru lögð fram til kynningar og umræðu en drögin fara síðan til Nemendafélagsins til umsagnar skv. reglugerð skólans. Rektor skýrði tillögurnar. Mál einstaklinga voru sérstaklega rædd. Slík mál ætti skv. tillögunum að afgreiða endanlega hjá rektor í stað þess að bera þau undir háskólaráð. Einstaklingsbundin mál eru viðkvæm og tengjast einstaklingar innan ráðsins oft málum viðkomandi einstaklinga. Nemendur hefðu hins vegar alltaf rétt til að áfrýja til úrskurðarnefndar.
Almennt leist fundarmönnum nokkuð vel á drögin sem lögð voru fram. Fyrirspurn kom hvort mál einstaklinga væru fyrst afgreidd á deildarfundum áður en þau kæmu á borð rektors. Rektor áréttaði að ávallt væri leitast við að halda fjölda þeirra sem kæmu að einstaklingsbundnum málum í lágmarki vegna þess hversu viðkvæm slík mál væru. Nafngreind mál væru yfirleitt ekki rædd á deildarfundum og trúnað á að virða sem frekast er unnt.
Spurt var um nýleg átök milli nemenda á háskólasvæðinu, þau rædd og vald rektors í því sambandi. Rektor svaraði því til að hægt væri  að vísa fólki umsvifalaust úr skóla ef um alvarleg brot væri að ræða en ákveðnar reglur, áminningar og húsleigulög giltu um losun húsnæðis. 
Fulltrúi nemenda í FD og fulltrúi meistaranema lýstu sig andsnúna tilfærslu ákvarðana varðandi nemandamál frá háskólaráði til rektors. Að lokinni umræðu fóru tillögurnar til umsagnar Nemendafélagsins og tillögurnar koma aftur til umræðu og afgreiðslu á næsta háskólaráðsfundi.

 

5. Breytingar á reglugerð til umræðu í stjórn skólans (lagðar fram til kynningar en þær leiða af lið 4). Þessar breytingar leiða af fyrri lið og koma því ekki til afgreiðslu i stjórn skólans fyrr en umfjöllun um fyrri dagskrárlið er lokið. 

 

6. Skólastarfið. Rektor óskaði eftir áliti fundarmanna um gang mála í skólanum. Fundarmenn voru sammála um að skólaárið hefði byrjað vel utan lögreglumálsins sem kom upp. Verið er að skoða að halda hátíðarkvöldverði og Bifróvisjón hér á svæðinu. Fyrirspurn frá formanni nemendafélagsins varðandi hátíðarmálsverði deildanna hvort þátttakendur mættu koma með eigið áfengi þegar samkomur væru haldnar innan veggja skólans. Það þótti ekki eðlilegt. Fyrirspurn varðandi frágang eftir slíkar samkomur, hvort ekki væri eðlilegt að kaffihúsið sæi um frágang. Fjármálastjóri sagði það samningsatriði og þá yrði rukkað fyrir slíka vinnu. Fulltrúi kennara í FD ræddi frumkvæði nemenda að t.d. málfundum. Sagði kennara styðja slíkt frumkvæði en stuðningur þyrfti einnig að koma frá skólanum sjálfum þegar kæmi að því að hýsa uppákomurnar. Sami fulltrúi ræddi spurningakeppnina (pub quiz). Sagði keppnina vera úrkynjað afbrigði af því sem áður var og auglýsti eftir einstaklingum til að færa keppnina í fyrra horf. Fulltrúar nemenda, Einar og Eiríkur munu taka að sér þessa endurskoðun. Formaður nemendafélagsins talaði um áhugaleysi nemenda í félagsstarfi og spurði hvort einhver leið væri til að skólinn gæti hvatt nemendur til félagslegra dáða. Rektor svaraði til að ekki væri hægt að veita einingar fyrir félagsstarf en ábending kom hvort hægt væri að bjóða nemendum einhvers konar staðfestingu um þátttöku í félagsstarfi með sérstöku skírteini.

 

7. Nefndir ráðneytis um háskólamál og fjárlög. Rektor fór yfir störf erlendu og innlendu nefndanna sem voru settar á stofn í fyrra og rýnihóps ráðherra frá þessu ári. Samstarfið sem til umræðu milli Bifröst, HR og Listaháskólans er hins vegar ekki lengur í skoðun þar sem stjórn LHÍ fór frá því borði. Bifröst vill ekki samruna við HR einan. Háskólinn á Bifröst er sérhæfður skóli og við höldum vel sjó í þessu umróti. Verið er að skoða sameiginlegar meistaralínur með HA og HÍ. Gera má ráð fyrir að næstu ár verði erfið þar sem lítils stuðnings verður að vænta frá stjórnvöldum. Við lækkuðum húsaleigu duglega í sumar. Skólarnir á Hvanneyri og á Hólum hanga í lausu lofti og óvíst er með þeirra framtíð. HR mun eiga mjög erfitt með að standa undir hinni nýju skólabyggingu sinni. Spurt um fjárhagsstöðu Bifrastar. Rektor segir skólann standa vel fjárhagslega. Skólahúsnæði var selt fyrir 2 árum en keypt aftur  nú í sumar. Við ráðum yfir og eigum allt húsnæðið í dag fyrir utan Sjónarhól sem er í deilu og fyrir dómstólum en við leigjum aðeins annað húsið.

 

8. Bifrastarlistinn (verðlaun eru nú líka veitt fyrir fjarnám í VD og í stað- og fjarnámi í FGD). Tveir pottar eru fyrir FGD, stað- og fjarpottur þar sem þeir útskrifast ekki á sama tíma og tveir pottar í VD, stað- og fjarpottur. Hvergi hérlendis eru eins mörg verðlaun og hér og er mikill og vaxandi áhugi hjá nemendum á því að komast á Bifrastarlistann.

 

9. Húsnæðismál. Fulltrúi íbúa bar upp fyrirspurn varðandi áminninga vegna brota á húsnæðisreglum  og eftirfylgni þeirra. Rektor segir reglur varðandi áminningar skýrar og sé farið algerlega eftir þeim. Áminningar gilda í ár. Fyrirspurn varðandi af hverju ekki allir íbúðir Hamragarða séu með þröskuld. Sviðsstjóri húsnæðissviðs svaraði því til að hafist væri handa við verkið en vegna álags ynnist verkið ekki hraðar. Fyrirspurn varðandi hurðarhún á kaffihúsahurð. Þar er beðið eftir varahlutum. Rektor ræddi regluverkið um leigusamninga. Tryggingagjald er kr. 15 þús. og verður gengið á þetta tryggingagjald ef t.d. þarf að gera við boruð göt í veggi eða ef þarf að kaupa þrif/málun á reykingaíbúðum.

 

10. Erindi frá Nemendafélaginu. Fulltrúi nemenda í FD kom með tvær tillögur eða fyrirspurnir, annars vegar um að nemendur tækju aukinn þátt í markaðssetningu skólans og hins vegar fyrirspurn um auglýsingar á lausum stöðum. Rektor  þakkaði ábendingarnar og kvað sjálfsagt að nemendur hjálpuðu til við markaðsmál en þau eru í endurmati innan skólans og hefur m.a. verið ráðinn nýr markaðsstjóri. Rektor svaraði til varðandi ráðningar að fleiri uppsagnir væru í ár en ráðningar en lausar stöður væru ekki alltaf auglýstar. Stundum náð í hæft fólk eins og hefur verið með ráðningar síðustu prófessora skólans. Oft er auglýst en engin ein regla er í þessu. Stundum er tilfærsla á verkefnum meðal núverandi starfsmanna og stundum er skilyrði fyrir ráðningu að vera búsettur á svæðinu. Fyrirspurn varðandi hver sæi um rekstur Kaffihússins. Rektor sagði skólann gera það undir umsjón fjármálastjóra og matreiðslumeistara.  Fulltrúi lagadeildar kom með fyrirspurn varðandi fótboltasýningar á kaffihúsinu og hvort hægt væri að taka tillit til þeirra sem ekki hefðu áhuga á þeim með því að senda út sýningadagskrá. Einnig var óskað eftir að matseðli yrði sendur út. Einar sagði það vera í farvatninu, en  Sigurður Þór starfsmaður kaffihúss, mun annast ritstjórnarstörf fyrir Kaffihúsið.

 

11. Væntanlegar ráðstefnur og tónleikar. Rektor kynnti væntanlega ráðstefnu um ESB og Noreg og málstofu með Evrópskum samtökum um smærri fyrirtæki og frumkvöðla og hann sagði frá velheppnaðri heimspekiráðstefnu FD. Hinn 30. sept. nk. kl. 17-18 verða tónleika rá Kaffihúsinu með Magnúsi Eiríkssyni og Pálma Gunnarssyni.

 

12. Önnur mál. Engin önnur mál voru og fundi slitið kl. 16.55.

Sigrún Hermannsdóttir ritaði fundargerð

 



Til baka

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri