Háskólaráð, fundur nr. 108
Dags. 27.5.2009
Fundargerð háskólaráðsfundar miðvikudaginn 27. maí 2009 kl. 15 í Guðmundarstofu.
Ingibjörg Ingvadóttir (f. Elínu Blöndal), Ágúst Einarsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Davíð Fjölnir Ármannsson, Guðjón Þór Guðmundson, Alda Baldursdóttir, Kári Joensen, Þórhildur Þórdísardóttir, Bjarni Hafþórsson, Sigrún Hermannsdóttir sem ritaði fundargerð.
1. Fundargerð síðasta fundar
Samþykkt,
2. Skýrslur tveggja opinberra nefnda um háskólamál
Samantekt erlendu skýrslunnar fylgdi með dagskrá fundarins. Rektor fór yfir meginefni skýrslnanna. Þar er margt lagt til m.a. fækkun háskóla, tillaga um skóla fyrir doktorsnám á Íslandi, styrking rannsóknarumhverfis auk áherslu á byggðastefnu. Í innlendu skýrslunni er einnig talað um fækkun skóla, jafnræði í fjármögnun skólanna og að breyta háskólunum í sjálfseignarstofnanir. Hugmyndirnar eru róttækar og þarf að taka alvarlega að sögn rektors. Samþykkt að umræða um málið verði tekin á háskólafundinum 3. júní.
3. Háskólafundur 3. júní nk., frá kl. 12 til 16
Dagskrá fundarins kynnt. Rektor útskýrði refilinn og dreifði. Bryndís gerði grein fyrir innihaldi hans en við erum búin að innleiða mest af þessu í samræmi við Bologna ferlið. Nánar verður farið í refilinn á háskólafundinum. Rektor hvatti nemendur, miðstjórn og alla sem málið varðar að mæta á fundinn sem er opinn öllum.
4. Bréf miðstjórnar nemenda til skólayfirvalda
Bréfið fylgdi fundargögnum. Rektor lagði bréfið fyrir fundinn og sagði að verið væri að vinna að svörum við þeim spurningum sem þar koma fram og verður haldinn fundur fljótlega um þau svör. Nemendum var hrósað fyrir framtakið og nemendur lýstu ánægju sinni með panelfundinn sem haldinn var og telja slíka fundi skilvirka.
5. Erindi frá Nemendafélaginu
- Nemendur vilja efla áhrif sín innan Borgarbyggðar. Rektor hvatti
fólk til framboðs.
- Umræða um að meistaranemum var neitað um að nota Kringluna
til matarboðs. Enginn kannaðist við hver bannaði notkunina. Kanna
þarf forsögu þess máls betur.
- Óskað var eftir að Bifróvisjón yrði haldið hér að ári, til að gera
fleirum kleift að koma. Áhersla lögð á að svona skemmtanir væru
hins vegar ekki haldnar á virkum dögum vegna skólastarfs.
- Fyrirspurn um hvort fulltrúar nemenda í háskólaráði megi tjá sig
við miðstjórn um það sem fram færi á fundum. Rektor sagði mál
háskólaráðsfunda vera trúnaðarmál en í fundargerðum komi fram
niðurstaða funda.
- Fyrirspurn um hvort ekki væri hægt að taka tillit til skoðana
nemenda varðandi stórar breytingar innan skipulags skólans eða
skólaumhverfisins. Rektor taldi nemendur hafa tækifæri til að tjá
sig á viðeigandi vettvangi enda ættu nemendur fulltrúa í flestum
nefndum.
- Fyrirspurn um hvort einfalda megi undanþáguferli t.d.
v/verkefnaskila. Kennslustjóri sér um leyfisveitingar og sagði þær
vera í samræmi við reglugerð. Námsráðgjafar hafa ekkert með
undanþágur að gera, kennslustjóri ber einn ábyrgð á meðferð
þeirra og framkvæmd. Nemendur töldu að kennarar stjórnuðu
þessu sjálfir og samræmis væri ekki gætt. Rektor lagði áherslu á
að kennurum væri ekki heimilt að taka slíkar ákvarðanir og að
kennarar þurfi að fá leiðsögn í rétta átt.
6. Skólastarfið og húsnæðismál
Rektor tilkynnti breytingar í starfsmannahaldi og gerði grein fyrir að skólinn væri á fjárhagsáætlun.
Mostursmálið ætti að klárast í vikunni. Þýðir lítið að tilkynna um málið þar sem hlutirnir breytast hratt.
Fyrirspurn um umsóknir. Rektor sagði umsóknir misjafnar. Margar umsóknir í viðskiptalögfræði en færri í annað. Sagðist verða var við að fólk tæki seinna við sér í ár en hefur verið.
7. Tónleikar þennan dag kl. 17
Rektor hvatti til mætingar.
8. Önnur mál
- Minnti á útskriftina 6. júní en 73 nemendur munu útskrifast.
- Einnig var minnst á tónleika með Stuðmönnum hér 5. júní.
- Ósk nemenda komið á framfæri um að grilla með börnum í Paradísarlaut. Rektor tók vel í það.
- Ingibjörg Ingvadóttir vakti athygli á kopartaumum sem leka niður
Sjónarhólsveggina, hellurnar sem „skreyta“ bílastæðið og sjón- og
lyktarmengun ruslagámanna.
- Fjármálastjóri taldi upp úrræði varðandi þessi mál.
- Fyrirspurn um hvenær lokið verði við veginn. Fjármálastjóri sagði
lagfæringu væntanlega og verið er að vinna að lausn þessa máls.
- Fyrirspurn varðandi hljóðmön og hvort kanna mætti hug fólks
vegna hljóðmanar meðfram þjóðveginum. Af því hlytist mikið
öryggi fyrir börn.
- Fyrirspurn um breytingar á skipulagi með tilliti til næsta hausts.
Rektor sagði svo ekki vera en ef slíkt kæmi upp yrði það kynnt og
rætt.
- Knattspyrnuskóli kynntur sem og gítarkennsla fyrir börn.
Fundi slitið kl. 16.30.
Til baka