Fundargerðir
Deildarfundir viðskiptadeildar, fundur nr. 14

Dags. 10.1.2007

Mætt: RK, BJ, BÞB, AB, MÁS, , SB, LM, SK, EBK, og AP.

 

Forföll boða: SR og ES

 

 

Dagskrá

 

1.         Fundargerð síðasta fundar

            Samþykkt.

 

2.         Stefnumótun VD, áherslur, verkefni og kynning

Farið yfir mönnun sjö verkefna sem tengjast stefnumótun VD, samþykkt. Fyrst nefndum aðilum falið að kalla nefndirnar saman.

Rætt um mikilvægi þess að vinna í gæðamálum fari á skrið strax. Rætt um að fá Jón B Stefánsson Rektor Fjöltækniskólans til að kynna gæðakerfi skólans.

 

3.         Kæra vegna prófa í RHBH

Rætt hvað hægt sé að læra af þessari reynslu. Umræður varðandi tímasetningu prófa í fjarnámi og staðnámi hvort hægt sé í einhverjum tilfellum að samkeyra prófin. Ekki talið að það sé nauðsynlegt en heppilegt. Lögð áhersla á að bæta ferla varðandi fyrirlögn prófa.

 

4.         Erindi nemenda

Undanþágubeiðni 1 samþykkt.   

Undanþágubeiðni 2 falið deildarforseta að meta.

 

5.         Viðurkenning Menntamálaráðuneytisins

Deildarfulltrúar þurfa að skila starfsferilsskrá til deildarforseta sem fyrst ásamt kennslulýsingum á þeim námskeiðum sem þeir kenna. Þetta þarf að vera bæði á íslensku og ensku. Umsókn þarf að liggja fyrir í lok ágúst.

 

6.         Erlendir kennarar

Deildarforseti kynnti umsækjendur um stöðu Fulbright kennara í IMCH og Erasmus kennara. Honum falið að velja á milli umsækjenda.

 

7.         Málstofur

Farið yfir lista yfir áhugaverða aðila á málstofu, samþykkt að leita til eftirtalinna aðila.

Björn Rúnar Viktorsson Landsbanka (evrumál)

Eggert Magnússon West Ham

Hrund Rúdolfsdóttir L&H

 

8.         Markaðssetning á meistaranámi

Farið yfir markaðssetningu á meistarnámi, Bankanámið komið lengst. Mikilvægt að önnur markaðssetning fylgi eftir.

 

9.         Kynning fyrir fjarnámsnema

Ingibjörg kynnti áformaða kynningu á Bifröst fyrir fjarnámsnema laugardaginn 13 janúar nk. þar sem fjarnámsnemar geta hitt væntanlega kennara sína.

 

10.        Heimsókn frá La Tobe University Melbourne

Deildarforseti greindi frá heimsókn deildarforseta ástralska skólans og hugmyndir um skiptinám. Ánægja er með samstarf við þennan skóla og kennaraskipti við hann.

 

11.        Þáttaka í vaxtarsamningi Austulands

Skólinn kemur til með að styrkja vaxtarsamninginn með hugsanlegu fjarnámi ofl.

 

12.        Skiptinemar

Rætt um að auka kröfur varðandi skiptinám til að koma í veg fyrir að nemendur fari á mis við námskeið sem eru nauðsynleg til að komast inn í meistaranám við innlenda og erlenda háskóla.

 

13.        Misserisverkefni

Rætt um hvort fækka megi misserisverkefnum. Bent á að kannanir meðal útskrifaðra nemenda hafa sýnt fram á að þeir telja misserisverkefnin það sem standi uppúr í náminu á Bifröst. Deildin telur að frekar eigi að auka aðkomu kennara að misserisverkefnum til dæmis með tengingu við tútorkerfið.

 

14.        Tútor

Lagt til að nýta tútorafundi til að auka aðstoð í misserisverkefnum td með því að ræða verkefni, hjálpa til við mótun þeirra ofl. Einnig má nýta tútorakerfið til þess að dýpka á umræðum á Málstofum

 

15.        Umsóknir um starf

Deildarforseti kynnti umsóknir sem borist hafa. Ráðningar eru ekki ráðgerðar.

 

16.        Önnur mál

Guðmundur Ólafssonlagði fram beiðni um undanþágu varðandi kennsluform skv. fylgiskjali. Samþykkt.

 

Fleira ekki gert

Bernharð H Bernharðsson, ritaði fundargerð

 



Til baka

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri