Fundargerðir
Deildarfundir viðskiptadeildar, fundur nr. 41

Dags. 24.2.2010

Deildarfundur viðskiptadeildar 24. febrúar 2010


Mætt: Ásta Dís Óladóttir, Kári Joensen, Stefán Kalmansson, Emil B. Karlsson, Signý Óskarsdóttir, Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir, Jón Freyr Jóhannsson, Margrét Rós Einarsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir.


Skipuritið – á umræðustigi.


Breytingar á skipulagi skólans. Umræða sem kemur í kjölfar úttektar Bolognia nefndarinnar, að einfalda ferlið. Skipta upp í tvö svið í stað þriggja deilda: „Rannsóknar og kennslusvið“ og „rekstrar og húsnæðissvið“. Hugmynd um að skipa 2  fagráð varðandi kennsluna (grunnnám og meistaranám). Yfirmaður kennslusviðs og svo umsjónarmenn yfir hverri deild. Aðili sem heldur utan um hverja línu.


Ástæðan fyrir þessu að sameina, einfalda, stytta boðleiðir og hagræða. Ekki gert ráð fyrir uppsögnum – titlum fækkað.
Umræða um valkúrsa – hvort þeim fækki.


Sviðsfundir og svo línufundir?
Þetta eru fyrstu hugmyndir sem ekki hafa verið lagðar fyrir stjórn. Hugmyndirnar leggjast almennt vel í fundarmenn.


Verið er að vinna í stefnumótun deildarinnar.

 

Fjarnámið – breytingar


Inga og Ásta Dís kynna


Fjarnám byggist upp á fólki sem er í vinnu og er að taka nám samhliða námi. Við þurfum að passa uppá lánshæfnina þannig að fjarnámið detti ekki út. Skv. Lín má ekki vera til neitt nám sem er skipulagt sem nám með vinnu.  Við þurfum alltaf að setja skipulagið upp sem 30 einingar á önn því annars getum við lagt fjarnámið niður. Við höfum max 20 vikur á haustönn.


Sjá skjal sem sent er með fundargerð.
Okkar aðal kúnnahópur í fjarnáminu er fólk í vinnu og miðað við fyrirhugaðar breytingar er erfitt að ná því.


Á vorönn náum við 24 einingum.


Er hægt að breyta þessum 3-4 fögum þannig að þau séu kennd á 12 vikum.


Af hverju kenna í 12 vikur frekar en 6? Sum fög eru þannig að þau henta betur til að ná utan um þau.


Nemendur hafa í gegnum tíðina viljað hafa kost á að einbeita sér að einu fagi í einu í lotu.


Aðferðafræðin yrði kennd eins og hefur verið en yrði kennd oftar.  Fulltrúi nemenda finnst sniðugara að brjóta þetta niður aðeins. Jón Freyr talar um að sniðugara gæti verið að flétta aðferðafræði og upplýsingatækni saman. Í staðnámi gæti verið hægt að sleppa fyrsta árs nemendum við tútor og þeir tækju aðferðafræði og upplýsingatækni í staðinn. Mjög stíft prógram fyrir nýja nemendur í aðferðafræði í 2 vikur.


Aðferðafræði og tækni – setja upp í 6 eininga ramman og flétta saman.

 

Setja upp plan og ræða við nemendur um breytingarnar fá þeirra upplifun á því. Stórmundur á reikningshaldi núna og áður.


Áður var missó í fjarnámi unnið í 6 vikur meðfram öðru fagi.


Vinnan heldur áfram.

 

Vinnuhelgarnar


Umsjónarmaður fjarnáms í VD greinir frá gagnrýni nemenda á hve illa vinnuhelgarnar nýtast.  Þarf að setja vinnuhelgarnar upp þannig að það sé hvati til þess að mæta og finna leiðir til þess að vinnuhelgar nýtist þeim sem búa erlendis.


Umræður um ýmsar leiðir til þess eins og að draga úr fyrirlestrum á vinnuhelgum og auka verkefnavinnu nemenda undir eftirliti kennara. Rætt um þátttökueinkunn fyrir virkni á vinnuhelgi og hvernig má mæla þá virkni hjá öllum nemendum.  Einnig rætt um að fá gestafyrirlesara á vinnuhelgar en skiptar skoðanir um gildi þess. Umræðurnar snérust um að auka verkefnavinnu auka gildi fjarnámsins að því leiti að nemandi fær meira út úr því að mæta en ekki.
Einnig var rætt um að hafa tímaæfingar á vinnuhelgum.
Ákveðið að setja upp skýrt skema fyrir vinnuhelgar (Jón Freyr, Guðrún og Stefán K.)

 

Önnur mál


Erindi frá nemendum: Verkefnatímar í reikningshaldi II og stjórnunarbókhaldi séu nýttir betur. Ásta talar við  kennarann.
Að lagt sé fyrir verkefni uppúr efni sem ekki er búið að fara yfir.

Einkunnir skila sér oft seint og illa frá kennurum. Kynna vel fyrir kennurum hverjar reglurnar eru.
Endurgjöf lítil, einsleit eða engin.


Fundi slitið 12:45

 


1. Upplýsingagjöf inná deildarfund – starfsmannasamtöl
2. Breytingar á störfum innan skólans (póstur frá Ágústi 24. febrúar 2010).

 



Til baka

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri