Deildarfundir viðskiptadeildar, fundur nr. 39
Dags. 2.12.2009
Deildarfundur viðskiptadeildar 2. desember 2009
Fundinn sitja:
1. Ásta Dís Óladóttir
2. Guðmundur Ólafsson
3. Emil B. Karlsson
4. Stefán Kalmansson
5. Jón Freyr Jóhannsson
6. Stefán Svavarsson
7. Kári Joensen
8. Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir
9. Signý Óskarsdóttir
Dagskrá:
1. Misserisverkefni og varnir vikuna 9 – 11 desember
Raðað niður kennurum á varnir.
2. Sjálfsmatsskýrsla
3. Úttekt á námi í viðskipta- og lagadeildum allra háskólanna
Sjálfsmatsskýrsla skólans – hvernig við höfum unnið innan Bifrastar í öllum deildum, breytingar o.s.frv. Þarf að vera tilbúin 15. desember 2009.
Hins vegar úttekt á viðskipta og laganámi á Íslandi – menntamálaráðuneytið. Verið að fara í gegnum hinn svokallaða refil.
Umfangsmikil úttekt – miklar breytingar á kúrsum og námslýsingum. Þarf að laga ýmislegt. Signý og Ásta að aðlaga námskeiðslýsingaformið. Hæfniviðmiðun.
Formsatriði í lagi. Hvað þarftu að klára til að fá gráðuna – samræmi á milli skóla.
Markmiðið að segja menntamálaráðuneytinu – svona gerum við – þetta þarf að klára til að útskrifast með BS í viðskiptafræði. Umræða um endurröðun á náminu – er það eins og það á að vera? Engar breytingar verið gerðar á náminu „eftir hrunið“.
Umræða um að meta kúrsana á milli kennara. Kennarar leggi mat á kennslu annarra kennara.
4. Tútor á næstu önn
Umræða um tútor á vorönn 2010. Annað hvort valið secondlife 2 eða námskeið hjá Sirrý.
Umræða um skiptinema sem hafa ekki sýnt metnað – svindlað á prófi.
Okkar hlutverk að hanna próf þannig að ekki sé hægt að svindla.
Hugmynd um serial númer sem nemandi sem er mættur í próf þarf að skila inn með prófinu. Hvað er hægt að gera til að svindla og hvernig getum við komið í veg fyrir svindl. Nota USB kubba og ekkert net. Signý og Jón Freyr sett í prófsvindlanefnd.
Starfsþjálfun komin af stað.
5. Fundur með menntamálaráðuneyti, þriðjudaginn 8. des.
Við kynnum menntamálaráðuneytinu skólann – sýnum honum hvað hann er frábær. Kynning varðandi fjölda nemenda, aldur og brottfall.
6. Staða umsókna í deildinni og skólanum auk markaðsmála
Ræst úr umsóknum – mikið verið auglýst og tekið eftir auglýsingunum. Auglýsingarnar öðruvísi, jákvæðar og öðruvísi upplifun. Fengum 2329 nýjar IP tölur á heimasíðuna okkar í síðustu viku og 2 milljónir af áreitum í síðustu viku í markhópnum okkar. . 18 umsóknir í fjarnámið - 1 í staðnámið – 3 í ensku línuna – einhverjir í meistaranámið.
Bankalínan er mest skoðuð á netinu – en skilar sér ekki í umsóknum.
Fjölbrautaskólar eru að útskrifa og það er markhópurinn núna.
Hvað getum við gert til að trekkja að og til að nýta húsnæðið sem við höfum?
Halda ráðstefnur
kynna aðstöðuna
Bjóða eldri nemendum að koma og gista og bjóða kynningar
Bjóða fyrirtækjum að koma og vera með prógram
Bjóða uppá endurmenntun fyrir fyrirtæki.
7. Erindi nemenda
8. Önnur mál
Næsti fundur miðvikudaginn 16. desember klukkan 10:00
Þar munum við halda áfram með umræðu um hvernig við getum trekkt að og taka fyrir eitt námskeið – Stærðfræðina hjá Guðmundi Ólafssyni.
Fundi slitið klukkan 12:20.
Til baka