Deildarfundir viðskiptadeildar, fundur nr. 38
Dags. 14.8.2009
DEILDARFUNDUR VD
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009 KL. 13:00 Í GUÐMUNDARSTOFU
Mættir eru: Ásta Dís Óladóttir, Jón Freyr Jóhannsson, Einar Svansson, Stefán Kalmansson, Stefán Svavarsson, Guðmundur Ólafsson, Kári Joensen og Sigrún Lilja Einarsdóttir
Vantar: Álfheiði Ágústsdóttur og Birgi Óla Sigmundsson
1. Kennslan í vetur:
a. Umsóknir – töluverð fækkun frá fyrra ári: 11 nemendur eru skráðir í staðnám í íslensku línunni í viðskiptafræði (BS), 22 í ensku línunni (9 eru staðnemar en restin skiptinemar) og um 50 nemendur í fjarnámi. 236 nemendur eru virkir í BS-námi í fjarnámi í Viðskiptafræði. 199 umsóknir bárust í heildina. 47 nemendum var hafnað í grunnámi í viðskiptafræði í stað- og fjarnámi.
b. Meistaranám: Hægt að byrja allt árið – átaks er þörf í fjármála- og bankalínunni. Verið er að samkeyra kúrsa með Evrópufræðinni – aukin hagkvæmni
c. Rætt um ýmsar tilfæringar í kennslu og uppsetningu kúrsa.
d. Tekið verður á móti stundakennurum í dag – samhristingur
e. Athuga námskeiðslýsingar á vefnum – skoða og laga.
f. Almennar umræður um námsmat og reglur um einkunnagjöf vegna úrbótaprófa.
2. Tútor, málstofur og ráðstefnur:
a. Dagsetningar: 2. Sept., 30. Sept, 28. Okt og sameiginleg með öðrum deildum 4. Nóv.
b. Setja saman ráðstefnu 30. sep. um lítli og meðalstór fyrirtæki og frumkvöðlamennsku –
c. 2. Sept: Markaðssetning í kreppu (Magnús Bjarni Baldursson)
d. Second life – Signý kynnir þær hugmyndir. Tveir kúrsar, Second Life I og II – þetta mun koma í staðinn fyrir tutor. Bæði nemendur og kennarar verða þjálfaðir í notkun á Second Life.
3. Rannsóknarvirkni:
Þarf að vera meiri rannsóknarvirkni í Viðskiptadeildinni – Félagsvísindadeildin kemur bestu út. Samþykkt var að leiðbeinendur í meistararitgerðum í Viðskiptadeild verði fyrst og fremst fastir kennarar.
4. Ritgerðir í Viðskiptadeild (eru í dag 14 ECTS) reglugerð heimilar ritgerðir 8-16 ECTS
Veldur vandamáli þessir 8 ECTS kúrsar – nauðsynlegt fyrir nemendur að einingafjöldi sé á pari.
Tillaga: Ásta Dís leggur til að deildin taki viðmiðun reglugerðar um að lokaverkefni í grunnnámi sé 8-16 ECTS. Í skipulagi verður gert ráð fyrir 14 ECTS ritgerð en nemendur geta tekið 12 eða 16 ECTS ritgerð. Tillagan er samþykkt samhljóða.
5. Starfsandi í deildinni – hvernig viljum við hafa deildina?
Ýmsar umræður um starfsanda í deildinni.
6. Önnur mál – engin mál
Fleira ekki gert - fundi slitið kl. 14:30.
Til baka