Fundargerðir
Deildarfundir lagadeildar, fundur nr. 17

Dags. 23.5.2007

Deildarfundur lagadeildar, miðvikudaginn 23. maí 2007, haldinn í Guðmundarstofu, kl. 13.00.

 

Mætt: Bryndís, Ingibjörg, Birgir, Sigurður, Sonja, Halla, Einar Karl.

 

1.                   Staða umsókna. Forseti greindi frá umsóknarstöðu sem er almennt góð. Í meistaranámi í lagadeild hefur orðið mikil aukning en staða bs umsókna er svipuð og verið hefur.

2.                   Skipulag skrifstofu. Ingibjörg Guðmundsdóttir nýráðinn kennslustjóri kom á fundinn og gerði grein fyrir nýju skipulagi og verkferlum á skrifstofu.  Deildarforseti ítrekaði mikilvægi þess að leiðbeinendur leyfðu undir engum kringumstæðum fresti á skilum bs ritgerða. Þeir hafa einfaldlega ekki heimild til að gefa slíkar undanþágur og eiga að beina slíkum beiðnum til þess starfsmanns sem nú hefur með þau að gera á skrifstofu, sem er Signý. Á skrifstofu er haldið utan um undanþágur og mótað verklag þar um slíkar undanþágur.

3.                   Prófafyrirkomulag, munnleg próf, verkferlar. Deildarforseti greindi frá því að nauðsynlegt væri að kennarar leituðu samþykkis fyrir því ef þeir ætluðu að hafa munnleg próf með utanaðkomandi prófdómara. Af því hlytist aukakostnaður, sem deildarforseti þyrfti að samþykkja.

4.                   Fyrirkomulag 1. vikuí haust. Deildarforseti greindi frá því að til stæði að hafa fyrirkomulag fyrstu viku í haust með sama hætti og verið hefur og leitað hefði verið til Capacent um skipulag þess.

5.                   Næstu fundir. Næsti fundur haldinn laugardag 9. júní, kl. 12.30,  fyrir útskrift sem haldin er sama dag. Það verður síðasti fundur fyrir sumarhlé deildarfunda.

6.                   Önnur mál.

1.       Minnt á háskólafund 31. maí.

2.       Rætt um útskrift 9. júní og fyrirkomulag hennar.

3.       Minnt á að áður fyrr var til eitthvað sem hét stuðningsfulltrúi nemenda og lagt til að það fyrirkomulag yrði tekið upp frá og með næsta hausti og þá að meistaranemar í ld yrðu fengnir í þetta hlutverk.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14.28.

Bryndís Hlöðversdóttir ritaði fundargerð.



Til baka

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri