Deildarfundir lagadeildar, fundur nr. 34
Dags. 26.5.2010
Deildarfundur lagadeildar Háskólans á Bifröst, miðvikudag 26. Maí 2010 kl. 15.00 í Baulu.
Mætt: Bryndís, Elín, Ingibjörg I, Ingibjörg Þ, Ingvar, Einar Karl.
Dagskrá:
- Inntaka nema fyrir næsta skólaár. Deildarforseti greindi frá því að inntaka í grunnnám stendur nú yfir og gengur vel. Umsóknarfrestur í allt nám við skólann er 15. Júní. Auglýsingaherferð er í gangi núna vegna haustsins en ákvörðun var tekin um að hefja auglýsingar seinna en í fyrra og hafa þær þéttari.
- Áður fyrirhugaðar skipulagsbreytingar. Deildarforseti greindi frá því að ákvörðun hafi verið tekin um það í samráði við verðandi rektor að bíða með hluta fyrirhugaðra skipulagsbreytinga þar til síðar. Sameining húsnæðissviðs og fjármálasviðs mun eiga sér stað strax, en beðið með frekari ákvörðun um sameiningu deilda þar til síðar.
- Stofnun Sigurðar Líndals í réttarsögu. Deildarforseti greindi frá stofnun Sigurðar Líndal í réttarsögu sem sett er á laggirnar í dag í samstarfi við Snorrastofu. Til stóð að gera þetta fyrir rúmu ári síðan en því slegið á frest, en ákveðið að framkvæma hana núna. Allir hvattir til að mæta og vera viðstaddir í dag kl. 17.00 í Reykholti.
- Hlutverkaleikur Sameinuðu þjóðanna á Bifröst. Deildir skólans hafa leitað eftir samstarfi við félag (ICE – MUN) sem hefur heimild til að standa að hlutverkaleik Sameinuðu þjóðanna hér á landi. Hér yrði þá sett upp svið fyrir tiltekið alþjóðlegt viðfangsefni (á að ráðast inn í Kóreu, eða skipuleggja friðargæslulið í Afghanistan, svo dæmi séu tekin) og myndu nemendur þá setja upp Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á svið í nýnemavikunni, þe frá 1. September, en kennsla hefst mánudag 6. September. Þetta gæti bæði orðið áhugavert og fræðandi viðfangsefni, sem og samhristingur. Þetta yrði í boði fyrir alla nemendur í grunnámi.
- Reglur um ritgerðir við Háskólann á Bifröst. Nokkuð hefur borið á því að nemendur skili ritgerðum á allra síðustu metrum sem gerir það að verkum að leiðbeinandi hefur lítil tök á að leiðbeina viðkomandi nemanda. Því hefur verið rætt um að breyta reglum um ritgerðaskil þannig að það verði sett milliskil á ritgerðum inn í dagskrá,auk þess sem nemandi þarf að skila lokadrögum til leiðbeinanda hálfum mánuði fyrir lokaskil ritgerðar. Mikilvægt er að leiðbeinendur geri áætlun með nemendum strax í upphafi leiðsagnar þrátt fyrir þetta svo koma megi í veg fyrir þau óþægindi sem skapast af skilum á síðustu metrum. Fjallað um aðferðir til að komast að ritstuld og mikilvægi þess að kennarar fái þjálfun í að takast á við slíkt.
- Önnur mál
a. Sumarleyfi kennara. Kennarar beðnir um að senda deildarforseta sumarleyfis áform sín hið fyrsta, svo skrifstofa hafi yfirlit yfir það hvenær kennarar eru í sumarleyfi.
b. Tengslanet kvenna. Allir hvattir til að mæta á Tengslanetið.
c. Kveðjuhóf rektors 3. Júní. Rektor hyggst kveðja samstarfsmenn sína með hófi þann 3. Júní, starfsmenn beðnir um að taka daginn frá.
d. Útskrift og rektorsskipti 5. Júní. Minnt á útskrift þann 5. Júní og rektorsskipti, sem verða sama dag. Mikilvægt að kennarar mæti vel á útskrift.
e. Nýr deildarforseti viðskiptadeildar. Stefán Kalmansson mun taka við starfi deildarforseta þann 5. Júní n.k, en þá hættir Ásta Dís störfum sem deildarforseti. Hún mun vera áfram í starfi sem dósent við skólann en í leyfi fyrst um sinn.
f. Starfsnám. Deildarforseti lýsti því yfir að vel hafi tekist til með starfsnámið hjá flestum nemendum í ML náminu. Ingvar tók undir það og taldi þetta mjög gott skref í náminu.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.09.
Til baka